Icelandic
Birt: 2015-12-14 10:25:11 CET
TM hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.

Í 50. viku 2015 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 1.253.307 eigin hluti fyrir 28,7 m.kr. eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Hlutir í eigu TM eftir viðskipti
7.12.2015 09:30 639.303 23,05 14.735.934 22.676.230
8.12.2015 09:30 500.000 22,60 11.300.000 23.176.230
11.12.2015 11:09 2.500 23,40 58.500 23.178.730
11.12.2015 11:43 56.504 23,40 1.322.194 23.235.234
11.12.2015 13:27 22.500 23,40 526.500 23.257.734
11.12.2015 13:36 22.500 23,40 526.500 23.280.234
11.12.2015 14:57 10.000 23,40 234.000 23.290.234
Samtals   1.253.307   28.703.628  

 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. september 2015, sbr. og tilkynningu til Kauphallar þann dag.

TM hefur nú keypt samtals 23.290.234 hluti í félaginu sem samsvarar 75,1% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 519,6 milljónum króna. TM á nú samtals 3,1% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 31.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016 en þó aldrei síðar en 31. mars 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.

 

Nánari upplýsingar veitir

Sigurður Viðarsson, forstjóri

s: 515-2609

sigurdur@tm.is