Icelandic
Birt: 2015-12-08 10:42:02 CET
Fagfjárfestasjóðurinn REG 1
Fyrirtækjafréttir

Fagfjárfestasjóðurinn REG 1 - Samþykkt að stækka skuldabréfaflokkinn REG 1 12 1 um 1.500.000.000 og öll stækkunin seld

Fundur eigenda að skuldabréfum í skuldabréfaflokknum REG 1 12 1 fór fram þann 7. desember 2015 kl. 15:00 að Borgartúni 19, 105 Reykjavík.  Mætt var á fundinn fyrir 99,6% af eigendum skuldabréfaflokksins m.v. fjárhæð og samþykktu allir stækkun skuldabréfaflokksins um kr. 1.500.000.000,- að nafnverði.  Heildar útgefið nafnverð verður því kr. 7.000.000.000,-  Allir aðrir skilmálar haldast óbreyttir.

Núverandi eigendur skuldabréfaflokksins, sem mætt var fyrir á fundinn, skráðu sig fyrir þeirri stækkun sem samþykkt var m.v. 3,6% ávöxtunarkröfu.  Gert er ráð fyrir að flokkurinn verði stækkaður þann 15. desember n.k.

Frekari upplýsingar veitir Jón Finnbogason (jon.finnbogason@stefnir.is), forstöðumaður skuldabréfa hjá Stefni hf.