Icelandic
Birt: 2015-12-03 17:21:44 CET
Reitir fasteignafélag hf.
Fyrirtækjafréttir

REITIR: Útboð á skuldabréfum 8. desember og birting grunnlýsingar

Reitir fasteignafélag hf. efnir til útboðs á skuldabréfum þriðjudaginn 8. desember næstkomandi. Boðin verða til sölu skuldabréf í áður útgefnum flokki REITIR151244 og nýjum flokki REITIR151124. Báðir flokkar eru verðtryggðir með jöfnum greiðslum og veðtryggðir með fyrirliggjandi almennu tryggingarfyrirkomulagi félagsins, en lánstími REITIR151244 er 29 ár og lánstími REITIR151124 er 9 ár.

Fjárfestingabankasvið Arion banka hf. hefur umsjón með útboðinu. Heildarstærð útboðsins getur verið allt að 10 milljarðar kr. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið er. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum.

Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar, sbr. 1. mgr., 1. tl. a og b 50. greinar laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti, en grunnlýsing vegna útgáfuramma félagsins hefur verið birt og hefur félagið útbúið drög að lokaskilmálum ofangreindra flokka. Fyrirtækjaráðgjöf Fjárfestingabankasviðs Arion banka hf. hafði umsjón með því ferli að fá grunnlýsinguna staðfesta hjá Fjármálaeftirlitinu. Grunnlýsing, tryggingabréf, útgáfulýsingar og lokaskilmálar ásamt tengdum skjölum eru birt á vefsíðu félagsins reitir.is/fjarfestar. Grunnlýsinguna má nálgast á vefsíðunni næstu 12 mánuði og hjá útgefanda í höfuðstöðvum félagsins að Kringlunni 4-12, Reykjavík.

 

Nánari upplýsingar veitir:

Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, á netfanginu einar@reitir.is eða í síma 669 4416.