Icelandic
Birt: 2015-12-02 16:31:51 CET
Fagfjárfestasjóðurinn REG 1
Fyrirtækjafréttir

Fagfjárfestasjóðurinn REG 1

REG 1 12 1

Þann 12. október 2012 gaf fagfjárfestasjóðurinn REG 1, kt. 680912-9390, út skuldabréf að fjárhæð kr. 5.500.000.000,-  Skuldabréfið er skráð í OMX Kauphöll Íslands undir auðkenninu REG 1 12 1.

Í framhaldi af tilkynningu frá 20. nóvember 2015 er boðað til fundar eigenda skuldabréfaflokksins.  Fundurinn mun fara fram þann 7. desember 2015 kl. 15:00 að Borgartúni 19, 105 Reykjavík.

Á fundinum verður óskað eftir afstöðu eigenda skuldabréfaflokksins varðandi heimild til handa útgefanda til þess að stækka skuldabréfaflokkinn REG 1 12 1 um allt að kr. 1.500.000.000,- að nafnverði þannig að heildar útgefið nafnverð verði allt að 7.000.000.000,-

Í skilmálum skuldabréfaflokksins REG 1 12 1 kemur fram að til að samþykkja skilmálabreytingu á skuldabréfaflokknum þarf útgefandi samþykki 90% eigenda útgefinna skuldabréfa flokksins m.v. fjárhæð.

Frekari upplýsingar og gögn má nálgast hjá Jóni Finnbogasyni (jon.finnbogason@stefnir.is), forstöðumaður skuldabréfa hjá Stefni hf.