English Icelandic
Birt: 2015-11-24 10:24:15 CET
Arion banki hf.
Fyrirtækjafréttir

Arion banki gefur út skuldabréf í norskum krónum

Í gær, mánudaginn 23. nóvember, lauk Arion banki skuldabréfaútgáfu í norskum krónum. Samtals voru gefin út skuldabréf fyrir 300 milljónir norskra króna, eða sem jafngildir um 4,6 milljörðum króna, til tæplega fimm ára. Um er að ræða viðbót við skuldabréfaútgáfu bankans frá því í júní á þessu ári. Brefin, sem bera NIBOR vexti að viðbættu 2,95% vaxtaálagi, voru seld á kjörum sem samsvara NIBOR vöxtum með 2,80% álagi. Umframeftirspurn var eftir skuldabréfunum sem seld voru til fjárfesta í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og á meginlandi Evrópu. Pareto Securities sá um sölu skuldbréfanna.
 
Samhliða skuldabréfaútgáfunni keypti Arion banki til baka NOK 75 milljónir af skuldabréfaútgáfu frá árinu 2013. Arion banki hafði áður keypt 319 milljónir og hefur bankinn samtals keypt NOK 394 milljónir tilbaka af NOK 500 milljón króna útgáfu frá árinu 2013.

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s. 856 7108.