English Icelandic
Birt: 2015-11-10 23:45:00 CET
HS Orka hf.
Reikningsskil

HS Orka hf. birtir árshlutareikning fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2015

Stjórn HS Orku hf. samþykkti á fundi sínum í dag árshlutareikning fyrirtækisins fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2015. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla, IFRS og er í íslenskum krónum. Árshlutareikninginn má finna á vefsíðu fyrirtækisins http://www.hsorka.is

Helstu atriði árshlutareikningsins eru þessi:

Rekstartekjur fyrirtækisins hækkuðu um 1,4% og námu 5.388 milljónum á tímabilinu, samanborið við 5.311 m.kr. á fyrstu níu mánuðum ársins 2014. Lækkun á virði afleiða (framtíðarvirði orkusölusamninga sem tengjast álverði) nam 2.156 m.kr. á tímabilinu en var neikvæð um 177 m.kr. á fyrstu níu mánuðum 2014. Gengishagnaður var 206 m.kr. á tímabilinu, samanborið við gengishagnað upp 112 m.kr. á sama tímabili 2014.

Hagnaður tímabilsins af reglulegri starfsemi nam 290 m.kr. samanborið við 1.198 m.kr. hagnað á sama tímabili 2014. Heildarafkoma var hins vegar hagnaður upp á 172 m.kr. samanborið við 1.142 m.kr. hagnað á fyrstu níu mánuðum ársins 2014.

EBITDA jókst um 7% á milli tímabila og er alls 2.100 m.kr. á fyrstu níu mánuðum ársins 2015 en var 1.963 m.kr. á sama tímabili 2014.

Rekstur HS Orku hf. gengur því vel þrátt fyrir neikvæða afkomu af reiknuðum fjármagnsliðum. Tekjur jukust á milli ára um 77 m.kr. en rekstrarkostnaður lækkaði um 28 m.kr.. Tekjur hafa aukist bæði frá smásölumarkaði og frá stórnotendum.  Rekstrarkostnaður orkuvera hefur aukist nokkuð, orkukaup hafa aukist talsvert og flutningskostnaður hækkað sömuleiðis.

Eiginfjárhlutfall 30. september 2015 var 59,7% sem er sama hlutfall og var í árslok 2014.

Frekari upplýsingar veitir Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku hf. í síma 520 9300 / 855 9301.


HS Orka Financial Statement 30 september 2015.pdf