English Icelandic
Birt: 2015-11-06 10:33:31 CET
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Flutningatölur október 2015

Í október flutti félagið 254 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 19% fleiri en í október á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 16% og sætanýting var 83,6% samanborið við 81,4% í sama mánuði í fyrra. Sætanýtingin hefur aldrei verið hærri, jafnframt hefur félagið aldrei flutt fleiri farþega í október áður. Farþegum fjölgaði mest á ferðamannamarkaðinum til Íslands eða um 31,8%.

Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru um 25 þúsund í október og fjölgaði um 3% á milli ára. Framboð félagsins var aukið um 1% samanborið við október 2014. Sætanýting nam 74,9% og jókst um 1,6 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fjölgaði um 28% á milli ára. Fraktflutningar jukust um 4% frá því á síðasta ári. Herbergjanýting á hótelum félagsins var 72,3%.

   

MILLILANDAFLUG OKT 15 OKT 14 BR. (%) ÁTÞ 15 ÁTÞ 14 BR. (%)
Fjöldi farþega 253.868 212.902 19% 2.697.701 2.285.197 18%
Sætanýting 83,6% 81,4% 2,2 %-stig 83,9% 80,8% 3,1 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 908,3 780,8 16% 9.652,1 8.430,6 14%
             
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG OKT 15 OKT 14 BR. (%) ÁTÞ 15 ÁTÞ 14 BR. (%)
Fjöldi farþega 24.758 23.954 3% 256.147 253.271 1%
Sætanýting 74,9% 73,3% 1,6 %-stig 74,3% 71,8% 2,5 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 10,5 10,4 1% 128,3 129,8 -1%
             
LEIGUFLUG OKT 15 OKT 14 BR. (%) ÁTÞ 15 ÁTÞ 14 BR. (%)
Flugvélanýting 100,0% 100,0% 0,0 %-stig 98,7% 90,0% 8,7 %-stig
Seldir blokktímar 2.176 1.705 28% 19.611 17.668 11%
             
FRAKTFLUTNINGAR OKT 15 OKT 14 BR. (%) ÁTÞ 15 ÁTÞ 14 BR. (%)
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) 20.246 18.449 10% 208.090 184.372 13%
Seldir tonnkm. (FTK´000) 9.206 8.866 4% 83.183 81.760 2%
             
HÓTEL OKT 15 OKT 14 BR. (%) ÁTÞ 15 ÁTÞ 14 BR. (%)
Framboðnar gistinætur 24.118 22.909 5% 278.133 271.694 2%
Seldar gistinætur 17.443 16.541 5% 223.481 211.017 6%
Herbergjanýting 72,3% 72,2% 0,1 %-stig 80,4% 77,7% 2,7 %-stig

   

Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010

 

 


Traffic Data - Oktober.pdf