Icelandic
Birt: 2015-11-02 19:00:39 CET
Ríkisútvarpið ohf.
Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Breytingar í stjórn Ríkisútvarpsins ohf.

Ingvi Hrafn Óskarsson, formaður stjórnar Ríkisútvarpsins ohf., hefur sagt sig úr stjórn. Ingvi hefur átt sæti í stjórninni frá ágúst 2013.

Ingvi Hrafn Óskarsson: „Ég hef gegnt stöðu stjórnarformanns í Ríkisútvarpinu ohf. í rúm tvö ár. Sá tími hefur verið viðburðaríkur og annasömustu viðfangsefnin snúið að hinni erfiðu fjárhagsstöðu félagsins. Þar á meðal hefur stjórn fjallað um umfangsmiklar hagræðingaraðgerðir, uppsagnir starfsmanna, og samninga um sölu byggingarréttar á lóðinni að Efstaleiti sem ætlað er að lækka skuldir félagins umtalsvert. Mikilvæg skref hafa verð stigin í fjárhagslegri endurskipulagning, jákvæður viðsnúningur var staðfestur í nýlegu uppgjöri  og rekstur félagsins hefur verið hallalaus síðustu 12 mánuði. Þá urðu miklar breytingar á yfirstjórn Ríkisútvarpsins á þessu tímabili með ráðningu nýs útvarpsstjóra, nýju skipuriti og breytingum í framkvæmdastjórn.

 Þótt mikilvægum áföngum hafi verið náð í rekstri Ríkisútvarpsins er ljóst að framundan eru umfangsmikil verkefni við að móta framtíð félagsins. Við þær aðstæður tel ég nauðsynlegt að formaður stjórnar Ríkisútvarpsins eigi þess kost að sinna hinum brýnu viðfangsefnum af kostgæfni. Vegna mikilla og vaxandi anna í starfi mínu sem lögmaður sé ég mér því miður ekki fært að verja áfram nauðsynlegum tíma og orku í störf fyrir hönd Ríkisútvarpsins samhliða lögmannsstörfunum. Á þessum tímamótum tel ég því skynsamlegt að annar taki við verkefninu og fylgi því úr hlaði.

Ég er þakklátur fyrir það góða samstarf sem ég hef átt við aðra stjórnarmenn í Ríkisútvarpinu og starfsfólk félagsins. Ég vil sérstaklega þakka Magnúsi Geir Þórðarsyni útvarpsstjóra fyrir einkar gott samstarf, en hann er að mínu mati hæfileikaríkur stjórnandi og hefur staðið sig afar vel við erfiðar aðstæður.  Þá er ég einnig þakklátur fyrir þann eindregna stuðning mennta- og menningarmálaráðherra sem stjórn og stjórnendur Ríkisútvarpsins hafa notið.“

Magnús Geir Þórðarson, útvarpsstjóri: „Það er mikil eftirsjá af Ingva Hrafni úr stóli stjórnarformanns RÚV en okkar samstarf hefur verið afar traust og gott síðan ég tók við starfi útvarpsstjóra fyrir einu og hálfu ári. Ingvi Hrafn hefur unnið af einstökum heilindum í þágu Ríkisútvarpsins.“

 


Ursogn ur stjorn.pdf