Icelandic
Birt: 2015-11-02 10:21:30 CET
TM hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.

Í 44. viku 2015 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 1.993.386 eigin hluti fyrir 47,1 m.kr. eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Hlutir í eigu TM eftir viðskipti
26.10.2015 13:34 639.303 23,75 15.183.446 11.654.294
27.10.2015 15:18 639.303 23,55 15.055.586 12.293.597
28.10.2015 15:09 107.593 23,65 2.544.574 12.401.190
28.10.2015 15:19 531.710 23,65 12.574.942 12.932.900
29.10.2015 10:35 11.917 23,45 279.454 12.944.817
29.10.2015 15:08 13.590 23,45 318.686 12.958.407
29.10.2015 15:29 22.500 23,45 527.625 12.980.907
30.10.2015 11:44 22.500 24,05 541.125 13.003.407
30.10.2015 12:34 4.970 24,15 120.026 13.008.377
Samtals   1.993.386   47.145.463  

 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. september 2015, sbr. og tilkynningu til Kauphallar þann dag.

TM hefur nú keypt samtals 13.008.377 hluti í félaginu sem samsvarar 42,0% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 279,3 milljónum króna. TM á nú samtals 1,8% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 31.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016 en þó aldrei síðar en 31. mars 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.

 

Nánari upplýsingar veitir

Sigurður Viðarsson, forstjóri

s: 515-2609

sigurdur@tm.is