Icelandic
Birt: 2015-10-29 17:05:08 CET
TM hf.
Reikningsskil

Hagnaður TM á þriðja ársfjórðungi 2015 nam 1,4 milljörðum króna.

 

Reykjavík, 29. október 2015

 

Á stjórnarfundi 29. október 2015 samþykkti stjórn og forstjóri TM uppgjör félagsins vegna fyrstu níu mánaða ársins 2015. Árshlutareikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður af endurskoðendum félagsins.

Sigurður Viðarsson, forstjóri TM:

„Rekstrarniðurstaða fjórðungsins var mjög góð en hagnaður félagsins eftir skatta á fjórðungnum var 1,4 milljarðar kr. og samsett hlutfall vátryggingarekstrar var 85%. Afkomubatinn á þriðja ársfjórðungi fór verulega fram úr væntingum enda ekki við því að búast að fjárfestingatekjur ríflega tvöfaldist milli ára. Þá lækkaði samsetta hlutfallið mun meira en ráð var fyrir gert. Uppgjör TM það sem af er ári sýna að sveiflur í vátryggingarekstri geta verið miklar innan ársins.“

Helstu niðurstöður þriðja ársfjórðungs og fyrstu níu mánuði 2015 voru eftirfarandi:

  3F 2015 3F 2014 Breyting 9M 2015 9M 2014 Breyting
Eigin iðgjöld 3.380 2.893 17% 9.432 8.464 11%
Fjárfestingatekjur 1.286 630 104% 2.774 1.719 61%
Aðrar tekjur 9 9 1% 29 30 -3%
Heildartekjur 4.675 3.531 32% 12.235 10.213 20%
Eigin tjón -2.271 -2.201 3% -7.595 -6.238 22%
Rekstrarkostnaður -687 -623 10% -2.292 -2.162 6%
Fjármagnsgjöld -65 -15 342% -137 -46 197%
Virðisrýrnun útlána -67 -63 7% -55 -36 52%
Heildargjöld -3.090 -2.902 6% -10.079 -8.482 19%
Hagnaður fyrir tekjuskatt 1.585 630 152% 2.156 1.731 25%
Tekjuskattur -162 -103 58% -180 -190 -5%
Hagnaður 1.422 527 170% 1.976 1.541 28%

Fjárhæðir eru í milljónum króna.

Enn neikvæð framlegð af vátryggingastarfsemi þrátt fyrir góðan fjórðung.

Lágt samsett hlutfall á þriðja fjórðungi skýrist af því að eigin iðgjöld aukast um tæplega 490 milljónir kr. milli ára eða um 17%, á sama tíma og tjónakostnaður vex einungis um 70 milljónir kr. eða um rúm 3%. Iðgjaldavöxturinn er mestur í skipa-, eigna- og ökutækjatryggingum. Afkoma einstakra greinaflokka á fjórðungnum var góð að undanskildum frjálsum ökutækjatryggingum. Framlegð  greinaflokka það sem af er ári er hins vegar enn neikvæð ef frá eru taldar eigna- og líftryggingar.

Góð ávöxtun  fjárfestingaeigna á þriðja ársfjórðungi.

Fjárfestingatekjur voru tæplega 1,3 milljarðar kr. sem jafngildir um 4,9% ávöxtun á fjárfestingaeignir félagsins á tímabilinu. Þessi góða afkoma skýrist af miklum hækkunum á innlendum hlutabréfamarkaði sem og af endurmati óskráðra eigna. Erlendir eignamarkaðir voru hins vegar óhagfelldir þar sem helstu erlendu hlutabréfavísitölur lækkuðu á bilinu 7-12%. Að auki styrktist íslenska krónan á fjórðungnum gagnvart helstu myntum en framangreindir þættir höfðu um 300 milljóna kr. neikvæð áhrif á fjárfestingatekjurnar á fjórðungnum. Fjárfestingatekjur á fyrstu níu mánuðum ársins voru tæpir 2,8 milljarðar kr. sem jafngildir um 10,5% ávöxtun á tímabilinu eða 14,2% ávöxtun á ársgrundvelli.

Lykiltölur þriðja ársfjórðungs og fyrstu níu mánuði  2015 voru eftirfarandi:

  3F 2015 3F 2014 Breyting 9M 2015 9M 2014 Breyting
Hagnaður á hlut (kr.) 1,93 0,70 175% 2,67 2,04 31%
Arðsemi eigin fjár (m.v. 12m) 57% 17%   21% 15%  
Eiginfjárhlutfall 36% 42%   36% 42%  
Handbært fé frá rekstri - -   436 774 -44%
Vátryggingastarfssemi            
Tjónshlutfall 67% 76%   81% 74%  
Kostnaðarhlutfall 18% 19%   22% 22%  
Samsett hlutfall 85% 95%   102% 96%  
Hagnaður/tap 641 162 296% 358 505 -29%
Framlegð 498 146 241% -198 332 -160%
Fjárfestingar            
     Ávöxtun fjáreigna 4,9% 2,4%   10,5% 6,8%  
Hagnaður/tap 944 468 102% 1.799 1.226 47%

Fjárhæðir eru í milljónum króna.

Ný spá gerir ráð fyrir 2,5 – 2,7 milljarða kr. hagnaði fyrir skatta.

Eins og fram kom í afkomuviðvörun félagsins frá 26. október s.l. vænta stjórnendur þess nú að hagnaður ársins verði á bilinu 2,5 - 2,7 milljarðar kr. fyrir skatta.  Munar þar mestu um aukningu í fjárfestingatekjum. Óvissuþættir varðandi nýja spá eru þróun á virði fjárfestingaeigna og tjónakostnaður á fjórða fjórðungi sem hefur verið tjónaþungur á síðustu árum.

Kynningarfundur 30. október 2015 kl. 8:30.

TM býður til opins kynningarfundar um afkomu félagsins á þriðja ársfjórðungi þann 30. október kl. 8:30. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum TM að Síðumúla 24. 4. hæð. Þar mun Sigurður Viðarsson forstjóri kynna uppgjörið og svara spurningum. Kynningin verður aðgengileg í fréttakerfi Kauphallar og á vef félagsins við upphaf fundar.

Mögulegt verður að fylgjast með beinni útsendingu af fundinum á vefnum á slóðinni:

https://global.gotomeeting.com/join/532375365

Fjárhagsdagatal

  • Uppgjör 4. ársfjórðungs verður birt 12. febrúar 2016

 

Nánari upplýsingar:

Sigurður Viðarsson forstjóri

s: 515-2609

sigurdur@tm.is


Frettatilkynning um afkomu TM 3F 2015.pdf
Tryggingamistoin arshlutareikningur 30 09 2015.pdf