Icelandic
Birt: 2015-10-28 17:59:05 CET
Origo hf.
Reikningsskil

Tekjur Nýherja aukast um 17% á fyrstu níu mánuðum ársins

Nýherji hagnast um 193 mkr á fyrstu níu mánuðum ársins og öll félög samstæðunnar skila hagnaði

Helstu upplýsingar:

  • Vöru- og þjónustusala á F3 nam 3.019 mkr (18,6% tekjuvöxtur samanborið við F3 2014) og 9.669 mkr á fyrstu níu mánuðum ársins (17,1 % tekjuvöxtur samanborið við fyrstu níu mánuði 2014)  [F3: 2014:2.545 mkr]
     
  • Framlegð nam 828 mkr (27,4%) í F3 og 2.465 mkr (25,5%) á fyrstu níu mánuðum ársins [F3 2014: 669 mkr (26,3%), fyrstu níu mánuðir 2014 2.171 mkr (26,3%)]
     
  • Heildarhagnaður í F3 nam 82 mkr og 193 mkr á fyrstu níu mánuðum árins [F3 2014: 12 mkr, fyrstu níu mánuðir 2014: 137 mkr]
     
  • EBITDA nam 240 mkr (8%) í F3 og 693 (7,2%) á fyrstu níu mánuðum ársins [F3 2014: 188 mkr (7,4%), fyrstu níu mánuðir 2014: 586 (7,1%)]
     
  • Jákvæð rekstrarafkoma var hjá öllum félögum samstæðunnar á fyrstu níu mánuðum ársins.
     
  • Nýherji flytur hýsingarþjónustu í gagnaver Verne Global

 

 

Finnur Oddsson, forstjóri:

 „Rekstur Nýherja og dótturfélaga á þriðja ársfjórðungi og það sem af er ári hefur gengið vel. Tekjur og afkoma eru umfram áætlanir og töluvert betri en í fyrra. Við erum ánægð að sjá kraftmikinn tekjuvöxt á milli ára, sem hefur þríþættar skýringar. Í fyrsta lagi er hann til marks um almennt aukin umsvif í hagkerfinu. Í öðru lagi þá skilar nýtt og skilvirkara skipulag okkur tilætluðum árangri. Í þriðja lagi þá er mikill áhugi erlendis á hugbúnaði sem dótturfélög Nýherja hafa þróað undanfarin misseri, einkum tímaskráningarlausnum frá Tempo og bankalausnum frá Applicon á Íslandi og í Svíþjóð. Öll félög samstæðunnar skila ágætri afkomu og eru horfur í rekstri þeirra góðar.“

 

 

Nánari upplýsingar

Finnur Oddsson forstjóri í síma 862-0310 eða fo@nyherji.is og Gunnar Petersen framkvæmdarstjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða gp@nyherji.is.

 

 

 

 

 

 

 

 


2015.09.30. Nyherji arshlutareikningur.pdf
2015.10.28 Uppgjor rija arsfjorungs hja Nyherja hf. - Frettatilkynning .pdf