Icelandic
Birt: 2015-10-27 17:17:56 CET
Hagar hf.
Fjárhagsdagatal

Hagar hf. - birting hálfsársuppgjörs 2015/16

Hagar hf. birta hálfsársuppgjör sitt fyrir tímabilið 1. mars 2015 - 31. ágúst 2015 miðvikudaginn 28. október nk.

 

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn á Nauthól, Nauthólsvegi 106 í Reykjavík, fimmtudaginn 29. október kl. 8:30, en þar mun Finnur Árnason, forstjóri Haga, kynna afkomu félagsins og svara spurningum ásamt stjórnendum félagsins.

 

Kynningarefni, ásamt upptöku af fundinum, verður aðgengilegt að honum loknum á heimasíðu Haga, www.hagar.is.