Reglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í 43. viku 2015 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 1.356.066 eigin hluti fyrir 30,9 m.kr. eins og hér segir:
Dagsetning |
Tími |
Keyptir hlutir |
Viðskiptaverð |
Kaupverð |
Hlutir í eigu TM eftir viðskipti |
19.10.2015 |
09:51 |
70.000 |
22,00 |
1.540.000 |
9.728.925 |
19.10.2015 |
13:59 |
7.460 |
22,05 |
164.493 |
9.736.385 |
21.10.2015 |
09:35 |
45.000 |
22,40 |
1.008.000 |
9.781.385 |
21.10.2015 |
13:50 |
594.303 |
22,60 |
13.431.248 |
10.375.688 |
22.10.2015 |
13:52 |
639.303 |
23,15 |
14.799.864 |
11.014.991 |
Samtals |
|
1.356.066 |
|
30.943.605 |
|
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. september 2015, sbr. og tilkynningu til Kauphallar þann dag.
TM hefur nú keypt samtals 11.014.991 hluti í félaginu sem samsvarar 35,5% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 232,1 milljónum króna. TM á nú samtals 1,5% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 31.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016 en þó aldrei síðar en 31. mars 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.
Nánari upplýsingar veitir
Sigurður Viðarsson, forstjóri
s: 515-2609
sigurdur@tm.is
|