English Icelandic
Birt: 2015-10-23 19:22:16 CEST
ÍL-sjóður
Fyrirtækjafréttir

Íbúðalánasjóður kaupir skuldabréf fyrir 70 milljarða og eykur jöfnuð á milli eigna og skuldabindinga sjóðsins

Íbúðalánasjóður hefur undirritað samning við dótturfélag Seðlabankans, ESÍ ehf., um kaup á skuldabréfum fyrir 70 milljarða króna. Um er að ræða eignavarin skuldabréf með veði í húsnæðislánum útgefin af Arion banka hf. Samningurinn er gerður með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og endanlegt samþykki stjórnar.

Kaupin munu hafa jákvæð áhrif á vaxtamun og afkomu Íbúðalánasjóðs sem nemur um 1,1 milljarði króna á ári. Með kaupunum er lausafé sjóðsins sem safnast hefur upp vegna uppgreiðslna og leiðréttingar húsnæðislána síðustu missera, fjárfest í verðtryggðum eignum sem bera fasta vexti. Einnig munu þessi kaup auka jöfnuð milli eigna og skulda sjóðsins hvort sem litið er til fjárflæðis eða verðtryggingarjafnaðar.