Icelandic
Birt: 2015-10-22 14:09:51 CEST
TM hf.
Fyrirtækjafréttir

Hagnaður Tryggingamiðstöðvarinnar hf. (TM) á þriðja ársfjórðungi umfram væntingar stjórnenda.

Samkvæmt drögum að uppgjöri TM fyrir þriðja ársfjórðung 2015 var hagnaður fyrir skatta á fjórðungnum á bilinu 1,5 - 1,6 milljarðar kr.

Aukinn hagnaður á fjórðungnum skýrist af mun hærri fjármunatekjum en búist var við. Við mikinn vöxt í fjármunatekjum bætist vöxtur eigin iðgjalda sem er einnig nokkuð umfram væntingar á tímabilinu.

Í ljósi þessa vænta stjórnendur þess að hagnaður ársins fyrir skatta verði á bilinu 2,5 - 2,7 milljarðar kr. í stað 2,1 milljarða kr. samkvæmt áður birtri áætlun. Munar þar mestu um hækkun fjármunatekna.

Óvissuþættir varðandi nýja spá eru þróun á verði fjárfestingaeigna og tjónakostnaður á fjórða fjórðungi sem hefur á síðustu árum verið tjónaþungur. Samhliða nýrri spá um aukinn hagnað ítreka stjórnendur félagsins fyrri varnaðarorð sín um að miklar sveiflur geti komið fram í vátryggingastarfsemi á milli fjórðunga.

TM mun birta árshlutauppgjör fyrir þriðja ársfjórðung 2015 eftir lokun markaða fimmtudaginn 29. október næst komandi og býður markaðsaðilum á kynningarfund um afkomu félagsins á þriðja ársfjórðungi kl. 8:30 föstudaginn 30. október.

 

Nánari upplýsingar veitir:

Sigurður Viðarsson, forstjóri

sigurdur@tm.is/s.515-2636