Icelandic
Birt: 2015-10-21 15:44:34 CEST
TM hf.
Fjárhagsdagatal

Uppgjör Tryggingamiðstöðvarinnar hf. (TM) á þriðja ársfjórðungi 2015 birt 29. október 2015 – kynningarfundur 30. október kl. 8:30

TM mun birta árshlutauppgjör fyrir þriðja ársfjórðung 2015 eftir lokun markaða fimmtudaginn 29. október næst komandi.

TM býður markaðsaðilum á kynningarfund um afkomu félagsins á þriðja ársfjórðungi kl. 8:30 föstudaginn 30. október. Þar mun Sigurður Viðarsson forstjóri kynna uppgjörið og svara spurningum. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum TM að Síðumúla 24. 4. hæð.

Árshlutareikning og afkomutilkynningu verður hægt að nálgast á vef félagsins www.tm.is. Kynning á uppgjörinu verður einnig aðgengileg á sama stað við upphaf kynningarfundar.

Hægt er að fylgjast með fundinum í gegnum vefinn á slóðinni: https://global.gotomeeting.com/join/822076189