Icelandic
Birt: 2015-10-20 01:42:12 CEST
Reitir fasteignafélag hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 42. viku 2015 keypti Reitir fasteignafélag hf. 312.742 eigin hluti fyrir 24.912.262 kr. eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskipta-verð Kaupverð      Eigin hlutir eftir viðskipti
12.10.2015 12:18 8.175 75,40 616.395 4.471.462
13.10.2015 09:36 250.000 79,50 19.875.000 4.721.462
14.10.2015 15:17 29.271 80,60 2.359.243 4.750.733
16.10.2015 10:50 25.296 81,50 2.061.624 4.776.029
Samtals   312.742   24.912.262  

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 19. júní 2015, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 18. júní 2015.    
    
Reitir hafa nú keypt samtals 4.776.029 hluti í félaginu sem samsvarar 14,05% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 338.217.187 krónum. Reitir eiga nú samtals 0,63% af heildarhlutafé félagsins.    
    
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 34.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 2.300 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016 en þó aldrei síðar en þann 29. febrúar 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.