Reglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.
Í 42. viku 2015 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 1.278.606 eigin hluti fyrir 28,0 m.kr. eins og hér segir:
Dagsetning |
Tími |
Keyptir hlutir |
Viðskiptaverð |
Kaupverð |
Hlutir í eigu TM eftir viðskipti |
15.10.2015 |
14:54 |
639.303 |
21,95 |
14.032.701 |
9.019.622 |
16.10.2015 |
11:06 |
639.303 |
21,85 |
13.968.771 |
9.658.925 |
Samtals |
|
1.278.606 |
|
28.001.471 |
|
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. september 2015, sbr. og tilkynningu til Kauphallar þann dag.
TM hefur nú keypt samtals 9.658.925 hluti í félaginu sem samsvarar 31,2% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 201,2 milljónum króna. TM á nú samtals 1,3% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 31.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016 en þó aldrei síðar en 31. mars 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.
Nánari upplýsingar veitir
Sigurður Viðarsson, forstjóri
s: 515-2609
sigurdur@tm.is
|