Icelandic
Birt: 2015-10-15 20:52:06 CEST
Síminn hf.
Fyrirtækjafréttir

Síminn hf.: Leiðrétting á upplýsingum í lýsingu dagsettri 25. september 2015

Í sátt sem gerð var við Samkeppniseftirlitið er ákvæði sem kveður á um að séu laun og önnur starfskjör starfsmanna Mílu ehf. tengd við afkomu skuli tengingin aðeins miðast við afkomu og árangur Mílu ehf. Samkvæmt kaupréttaráætlun sem samþykkt var á hluthafafundi Símans hf. 8. september 2015 nær hún ekki til starfsmanna Mílu ehf. Hvorki framkvæmdastjóri né starfsmenn Mílu ehf. hafa því kauprétt að hlutum í Símanum hf., líkt og fram kemur í kafla 4.4.3 í lýsingunni. Í töflu í sama kafla er hins vegar ranglega tilgreint að framkvæmdastjóri Mílu ehf., Jón Ríkharð Kristjánsson hafi kauprétt að 714.853 hlutum. Framkvæmdastjóri Mílu ehf. á því ekki kauprétt að hlutum í Símanum hf.