Icelandic
Birt: 2015-10-12 21:12:22 CEST
Reitir fasteignafélag hf.
Fyrirtækjafréttir

Kaup á fasteignafélögum í rekstri Stefnis

Reitir fasteignafélag hf. hefur ákveðið að ganga til samninga við eigendur fasteignasjóðanna SRE I slhf. og SRE II slhf. sem eru í rekstri Stefnis hf., um kaup Reita á tilteknum fasteignafélögum.

Heildarvirði kaupanna er samtals 17.980 m.kr. og verður að fullu fjármagnað með lánsfé og yfirtöku áhvílandi skulda. Um er að ræða tæplega 37.500 fermetra af vönduðu húsnæði ásamt byggingarrétti. Þessar fasteignir eru Hótel Borg, Borgartún 37, Guðrúnartún 10, Þingvallarstræti 23 á Akureyri, Laugavegur 77, Fiskislóð 11, Skúlagata 17, Síðumúli 16-18 og Faxafen 5. Allt að 6 þúsund fermetra byggingaréttur fylgir Borgartúni 37.

Eignirnar eru í útleigu til um 20 aðila með um 99% útleiguhlutfall en helstu leigutakar eru KEA hótel, Advania , Nýherji, Icelandair hótel, Geymslur og Fastus. Leigutekjur á ársgrunni nema um 1.360 m.kr. og er meðaltími leigusamninga um 12 ár.  Leiða kaupin til þess að áætlaður rekstrarhagnaður (NOI) Reita hækkar um 1.125 m.kr. á ársgrundvelli.

Afhending eignanna mun fara fram þegar fyrirvörum vegna viðskiptanna hefur verið aflétt en fyrirvarar eru gerðir um samþykki hluthafafunda seljenda, niðurstöður áreiðanleikakannana, samþykki Samkeppniseftirlitsins og endanlega fjármögnun Reita fyrir kaupunum. Fyrir liggur tilboð um fjármögnun frá Arion banka háð fyrirvara.

Ráðgjafi Reita vegna viðskiptanna er Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka.

Um viðskiptin segir Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita:
„Kaupin falla vel að eignasafni félagsins og fjárfestingarstefnu þess, samræmast vel þeim markmiðum sem félagið hefur sett sér varðandi fjármagnsskipan til framtíðar og arðsemi. Með kaupunum stækkar eignasafn Reita um 9% í fermetrum talið, bókfært virði eignasafnsins eykst um 17% og áætlaður rekstrarhagnaður um 18%. Um er að ræða fasteignasafn með samvali öflugra leigutaka sem við hjá Reitum hlökkum til samstarfs við.“

Nánari upplýsingar veita:
Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita fasteignafélags í síma 660 3320
Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri Reita fasteignafélags í síma 669 4416