English Icelandic
Birt: 2015-10-12 16:22:51 CEST
Landsbankinn hf.
Fyrirtækjafréttir

Landsbankinn gefur út skuldabréf í evrum

Landsbankinn hf. hefur í dag gefið út skuldabréf að fjárhæð 300 milljónir evra, eða sem nemur um 43 milljörðum króna.  Skuldabréfin eru til 3ja ára, bera fasta 3,00% vexti og voru seld á kjörum sem jafngilda 295 punkta álagi ofan á millibankavexti í evrum. 

Í september 2015 réð Landsbankinn fjárfestingarbankana Citi, Deutsche Bank og J.P. Morgan til þess undirbúa ofangreinda útgáfu.  Fjárfestafundir fóru fram dagana 21. – 25. september 2015 í Kaupmannahöfn, Osló, Helsinki, Stokkhólmi og London.  Skuldabréfin voru seld til fagfjárfesta og bárust tilboð fyrir 470 milljónir evra frá tæplega 60 fjárfestum.  Skuldabréfin eru gefin út undir 1 milljarðs evra Euro Medium Term Note (EMTN) skuldabréfaramma Landsbankans og verða bréfin skráð í kauphöllina á Írlandi.

Landsbankinn mun nýta andvirði útgáfunnar til þess að fyrirframgreiða veðtryggð skuldabréf í erlendum gjaldmiðlum sem eru á gjalddaga í október 2016 og að hluta skuldabréf sem eru á gjalddaga í október 2018, sbr. fréttatilkynningu bankans frá 18. september sl.

Landsbankinn mun áfram vinna að því að breikka og styrkja fjármögnun bankans í erlendum gjaldmiðlum, m.a. í þeim tilgangi að endurfjármagna útistandandi veðtryggð skuldabréf  bankans á hagstæðari kjörum.  Í framhaldi af útgáfunni í dag, en með fyrirvara um að slitastjórn LBI hf. ljúki nauðasamningi með greiðslu stöðugleikaframlags, mun Landsbankinn jafnframt greiða upp eftirstöðvar 2018 gjalddaga veðtryggðra skuldabréfa bankans í erlendum gjaldmiðlum, samtals að jafnvirði um 22 milljarðar króna. LBI hf. mun frá sama tíma ávaxta sömu fjárhæð í erlendum gjaldmiðlum með bundnum innlánum til október 2018 hjá Landsbankanum, á kjörum sem samsvara 1,50% álagi ofan á millibankavexti.

Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans:

„Útgáfan í dag er ánægjulegur áfangi og afar mikilvæg fyrir Landsbankann enda breikkar hún og styrkir verulega fjármögnun bankans í erlendri mynt.  Aðgangur Landsbankans að erlendum fjármagnsmörkuðum byggir m.a. á sterkri fjárhagsstöðu bankans sem endurspeglast í því að í sumar hækkaði alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor’s lánshæfiseinkunn Landsbankans í BBB-, og er einkunnin jafnframt með jákvæðum horfum.”

Ítarlegar upplýsingar um Landsbankann eru aðgengilegar fyrir fjárfesta og aðra áhugasama á  vef bankans á slóðinni: https://bankinn.landsbankinn.is/fjarfestar/

 

Nánari upplýsingar:

Fjárfestatengsl:  Hanna K. Thoroddsen ; ir@landsbankinn.is ; s: 410 7100