Icelandic
Birt: 2015-10-12 11:28:50 CEST
TM hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 41. viku 2015 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 2.579.592 eigin hluti fyrir 53,4 m.kr. eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Hlutir í eigu TM eftir viðskipti
5.10.2015 11:26 639.303 20,75 13.265.537 6.440.030
6.10.2015 09:55 639.303 20,75 13.265.537 7.079.333
7.10.2015 13:47 540.423 20,60 11.132.714 7.619.756
7.10.2015 14:39 76.380 20,60 1.573.428 7.696.136
7.10.2015 14:42 22.500 20,60 463.500 7.718.636
8.10.2015 10:28 22.380 20,60 461.028 7.741.016
9.10.2015 14:14 639.303 20,75 13.265.537 8.380.319
Samtals   2.579.592   53.427.282  

 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. september 2015, sbr. og tilkynningu til Kauphallar þann dag.

TM hefur nú keypt samtals 8.380.319 hluti í félaginu sem samsvarar 27,0% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 173,2 milljónum króna. TM á nú samtals 1,1% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 31.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016 en þó aldrei síðar en 31. mars 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.

 

Nánari upplýsingar veitir

Sigurður Viðarsson, forstjóri

s: 515-2609

sigurdur@tm.is