Icelandic
Birt: 2015-10-08 12:38:46 CEST
Reykjanesbær
Fyrirtækjafréttir

Fjármál Reykjanesbæjar

Í tilkynningu þann 8. mars síðastliðinn tilkynnti Reykjanesbær um alvarlega fjárhagsstöðu bæjarfélagsins. Jafnframt var tilkynnt um að bæjaryfirvöld ættu í viðræðum við kröfuhafa um endurskipulagningu skuldbindinga bæjarfélagsins.

Viðræðurnar standa enn yfir og taka mið af því að skuldaviðmið sveitarfélagsins verði komið niður fyrir lögbundið hámark í árslok 2022. Þeir kröfuhafar sem bæjarfélagið hefur átt í viðræðum við hafa veitt afslátt á greiðslum samhliða viðræðunum. Eigi viðræðurnar að skila árangri er nauðsynlegt að samkomulag náist við helstu kröfuhafa um verulega niðurfellingu skulda. Vinna við endurskipulagningu bæjarins hefur áhrif á skuldbindingar stofnana og félaga bæjarins, sbr. tilkynningar frá Reykjaneshöfn 2. október og fyrr í dag hinn 8. október þar sem tilkynnt var um að bæjarráð hefði hafnað beiðni hafnarinnar um fjármögnun. Reykjanesbær er samkvæmt lögum í ábyrgð fyrir skuldbindingum Reykjaneshafnar. Aðkoma kröfuhafa Reykjaneshafnar, í formi endurskipulagningar skulda, er forsenda samninga um fjárhagslega endurskipulagningu Reykjanesbæjar.

Náist ekki samningar við kröfuhafa um fjárhagslega endurskipulagningu bæjarfélagsins og stofnana þess verður samkvæmt sveitastjórnarlögum óskað eftir því að bæjarfélaginu verði skipuð fjárhagsstjórn.

Stefnt er að því að leggja fram tillögu að heildar endurskipulagningu fjárhags Reykjanesbæjar og stofnana hans fyrir kröfuhafa á næstunni.