Icelandic
Birt: 2015-10-08 12:31:18 CEST
Reykjaneshöfn
Fyrirtækjafréttir

Fjármál Reykjaneshafnar

 

Í tilkynningu Reykjaneshafnar dags. 2. október síðastliðin þar sem kom fram að vegna dráttar á samningsbundnum greiðslum til Reykjaneshafnar hefur höfnin óskað eftir fjármögnun frá Reykjanesbæ til að geta staðið við greiðslur skuldbindinga, sem eru á gjalddaga þann 15. október næstkomandi. Meðal þess sem um ræðir eru greiðslur af skráðum skuldabréfum í flokkum RNH 16 1015 og RNH 27 0415.

Samkvæmt ákvörðun bæjarráðs í dag 8. október 2015 var framangreindri beiðni um fjármögnun hafnað. Því er ljóst að til greiðslufalls á skuldbindingum Reykjaneshafnar mun koma að óbreyttu þann 15. október næstkomandi.

Hafnarstjórn Reykjaneshafnar hefur ákveðið að óska eftir greiðslufresti og kyrrstöðutímabili frá kröfuhöfum til 30. nóvember næstkomandi.. Jafnframt er boðað til kröfuhafafundar þann 14. október næstkomandi klukkan 10:00 í húsakynnum LOGOS lögmannsþjónustu, Efstaleiti 5, Reykjavík. Á dagskrá fundarins eru eftirfarandi mál:

a) Kynning á fjárhagsstöðu Reykjaneshafnar.

b) Tilkynnt um samþykki kröfuhafa á greiðslufresti og kyrrstöðutímabili.

c) Ákvörðun um fyrirkomulag viðræðna og skipan kröfuhafaráðs..



Að loknum fundi við kröfuhafa verður tilkynnt um hvort kröfuhafar hafi orðið við beiðni um greiðslufrest og kyrrstöðu.