Icelandic
Birt: 2015-10-02 11:00:29 CEST
Reykjaneshöfn
Fyrirtækjafréttir

Reykjaneshöfn hefur óskað eftir fjármögnun frá Reykjanesbæ

Vegna dráttar á samningsbundnum greiðslum til Reykjaneshafnar hefur höfnin óskað eftir fjármögnun frá Reykjanesbæ til að geta staðið við greiðslur skuldbindinga, sem eru á gjalddaga þann 15. október næstkomandi. Meðal þess sem um ræðir eru greiðslur af skráðum skuldabréfum í flokkum RNH 16 1015 og RNH 27 0415. Vegna yfirstandandi vinnu við fjárhagslega endurskipulagningu Reykjanesbæjar er óvissa um möguleika Reykjanesbæjar til að fjármagna greiðslurnar. Því getur komið til greiðslufalls á skuldbindingum Reykjaneshafnar.