REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í 39. viku 2015 keypti Reitir fasteignafélag hf. 237.349 eigin hluti fyrir 17.136.598 kr. eins og hér segir:
Dagsetning |
Tími |
Keyptir hlutir |
Viðskipta-verð |
Kaupverð |
Eigin hlutir eftir viðskipti |
22.9.2015 |
11:05 |
237.349 |
72,2 |
17.136.598 |
4.085.817 |
Samtals |
|
237.349 |
|
17.136.598 |
|
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 19. júní 2015, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 18. júní 2015.
Reitir hafa nú keypt samtals 4.085.817 hluti í félaginu sem samsvarar 12,02% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 285.094.820 krónum. Reitir eiga nú samtals 0,54% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 34.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 2.300 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016 en þó aldrei síðar en þann 29. febrúar 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.
|