English Icelandic
Birt: 2015-09-08 11:24:58 CEST
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Áframhaldandi vöxtur í millilandaflugi árið 2016

  • Fjöldi farþega áætlaður um 3,5 milljónir
  • Beint flug til 42 áfangastaða
  • 18% aukning í framboði milli ára
  • Chicago, Montreal og Aberdeen nýir áfangastaðir

Flugáætlun Icelandair, dótturfélags Icelandair Group, fyrir árið 2016 verður um 18% umfangsmeiri en á þessu ári. Gert er ráð fyrir að farþegar verði um 3,5 milljónir á árinu 2016, og muni fjölga um 450 þúsund frá yfirstandandi ári. Flug verður hafið til þriggja nýrra áfangastaða og ferðum fjölgað til fjölmargra borga í Norður-Ameríku og Evrópu. Alls verða 26 flugvélar nýttar til farþegaflugsins næsta sumar, tveimur fleiri en á þessu ári. Þessi vöxtur mun hafa í för með sér áframhaldandi eflingu ferðaþjónustunnar á Íslandi.

Framboðnum sætiskílómetrum fjölgar um 18% á næsta ári, en flugferðum í millilandaflugi fjölgar um 14%. Munurinn skýrist annars vegar af auknu vægi flugs á lengri flugleiðum til Norður-Ameríku og hins vegar af því að stækkun flugflotans á næsta ári felst í því að tvær 262 sæta Boeing 767-300 breiðþotur bætast í flota félagsins. Nýju vélarnar taka fleiri farþega en Boeing 757 vélarnar sem félagið notar annars.

Flogið verður til 42 áfangastaða í leiðakerfinu, sem er fjölgun um þrjá staði. Eins og áður hefur verið tilkynnt, hefst heilsársflug í mars til Chicago í Bandaríkjunum og flug til Montreal í Kanada hefst í maí. Þá hefst flug til Aberdeen í Skotlandi, á Q-400 flugvélum Flugfélags Íslands í mars. Mestu skiptir þó varðandi vöxt leiðakerfisins milli ára að tíðni er aukin á fjölmarga áfangastaði beggja vegna Atlantshafsins, í Norður-Ameríku og Evrópu.

Leiðakerfi félagsins hefur nærri þrefaldast að umfangi frá árinu 2009. Þá voru farþegar um 1,3 milljónir, eða 37% þess fjölda sem gert er ráð fyrir á árinu 2016, eða 3,5 milljónum. Leiðakerfið hefur einkum byggt á tengingum á Keflavíkurflugvelli með morgunbrottförum til Evrópu og síðdegisflugi til Norður-Ameríku. Undanfarin ár hefur félagið verið að byggja upp annan tengibanka, með brottförum laust fyrir hádegi til Norður Ameríku. Stækkunin á þessum tengibanka gefur möguleika á tveimur mismunandi brottfarartímum innan sama dags á áfangastaði, dreifir álagi á Keflavíkurflugvelli og styður vel við aðal tengibankann. Á árinu 2016 verður töluverður hluti vaxtarins utan megintengibankans og utan háannatímans að sumri.

 

Nánari upplýsingar veita:

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group  sími: 896-1455
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group sími 665-8801
Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair sími 897-4017