Icelandic
Birt: 2015-08-27 15:00:00 CEST
Reykjavíkurborg
Reikningsskil

Árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar – júní 2015

Árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar – júní 2015 var afgreiddur í borgarráði í dag fimmtudaginn 27. ágúst.

Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A og B hluta, var jákvæð um 303 mkr en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 2.141 mkr. Rekstrarniðurstaðan er því 1.838 mkr lakari en gert var ráð fyrir.  Helstu ástæður má rekja annars vegar til minni hagnaðar Orkuveitu Reykjavíkur vegna gjaldfærslu gangvirðisbreytinga innbyggðra afleiða í raforkusamningum vegna lækkandi álverðs og hins vegar til lakari afkomu A hluta heldur en áætlun gerði ráð fyrir.  Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 6.885 mkr sem er 232 mkr lakari niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir.

Heildareignir samstæðunnar samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í lok tímabils samtals 513.207 mkr, heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 292.812 mkr og eigið fé nam 220.395 mkr en þar af nam hlutdeild meðeigenda 11.744 mkr.  Eiginfjárhlutfall samstæðunnar er 42,9% en var 43,1% um síðustu áramót.

Rekstrarniðurstaða A-hluta var neikvæð um 3.038 mkr en áætlun gerði ráð fyrir að hún yrði neikvæð um 1.865 mkr á tímabilinu og er niðurstaðan því lakari en gert var ráð fyrir, sem nemur 1.173 mkr.  Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var neikvæð um 2.591 mkr en áætlun gerði ráð fyrir neikvæðri niðurstöðu um 1.434 mkr eða 1.157 mkr lakari en áætlun gerði ráð fyrir.   Lakari rekstrarniðurstaða skýrist meðal annars af lægri tekjum af sölu byggingaréttar og sölu fasteigna eða 552 mkr undir áætlun og hækkun launakostnaðar umfram áætlun um 403 mkr.

Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, þ.e. rekstur fagsviða, Eignasjóð og Bílastæðasjóð. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Orkuveita Reykjavíkur, Slökkvilið höfuðborgar­svæðisins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf og Jörundar ehf.

 

  

Nánari upplýsingar veitir

Halldóra Káradóttir skrifstofustjóri Fjármálaskrifstofu Reykjavíkurborgar sími 664-7701.


Reykjavikurborg arshlutareikningur jan - juni 2015.pdf
Reykjavikurborg - Skyrsla Fjarmalaskrifstofu me 6 man uppgjori 2015.pdf