Sjóvá-Almennar tryggingar hf. - Árshlutauppgjör
Sjóvá hagnaðist um 1.380 m.kr. á fyrri helmingi ársins 2015
-
Afkoma af vátryggingastarfsemi nam 271 m.kr.
-
Afkoma af fjárfestingarstarfsemi nam 1.415 m.kr.
Hermann Björnsson, forstjóri:
„Afkoma Sjóvár á fyrri árshelmingi var góð og munar þar mestu um afar góða afkomu af fjárfestingareignum sem var mun hærri en alla jafna má vænta. Vöxtur var í iðgjöldum og kostnaðarhlutfall lækkaði. Hátt tjónahlutfall sem einkenndi fyrsta ársfjórðung m.a. vegna óveðurstjóna, hélst áfram hátt á öðrum ársfjórðungi. Þar er skýringa að leita bæði í slæmu tíðarfari á fyrri hluta fjórðungsins en mikil aukning ferðamanna og almennt stóraukin bílaumferð hafa einnig áhrif.“
Annar ársfjórðungur:
Afkoma
-
Hagnaður af rekstri Sjóvár á öðrum ársfjórðungi nam 756 m.kr. (0,47 kr. á hlut)
-
Hagnaður fyrir skatta og afskrift óefnislegra eigna nam 887 m.kr.
-
Afkoma af vátryggingastarfsemi nam 216 m.kr.
-
Afkoma af fjárfestingarstarfsemi nam 658 m.kr.
-
Samsett hlutfall samstæðunnar var 100,8%
Efnahagur
-
Eigið fé nam 15.193 m.kr.
-
Fjárfestingareignir án söfnunarlíftrygginga námu 29.282 m.kr.
-
Eiginfjárhlutfall samstæðunnar var 34,3%
-
Arðsemi eigin fjár á ársgrundvelli var 18,3%
-
Gjaldþolshlutfall móðurfélagsins var 4,97
Fjárfestingar
Félagið greiddi út arð á ársfjórðungnum og því minnkaði laust fé. Félagið bætti við sig í hlutabréfum og óverðtryggðum skuldabréfum en seldi lengri verðtryggð skuldabréf. Ávöxtun eignasafnsins var 2,6% á fjórðungnum, ávöxtun skráðra hlutabréfa var 10% og ávöxtun ríkisskuldabréfa 0,7%.
Horfur
Í upphafi árs kynnti Sjóvá horfur í rekstri ársins 2015. Félagið hefur náð að vaxa að raungildi eins og að var stefnt. Tjónshlutfall er töluvert hærra en gert var ráð fyrir og ekki eru taldar líkur á að markmið ársins um samsett hlutfall náist. Fjárfestingartekjur eru það sem af er ári töluvert hærri en áætlað var. Ekki er gerð breyting á áætlaðri afkomu, þ.e. á bilinu 2.000 til 2.600 m.kr. fyrir skatta, en hún mun að miklu leyti ráðast af afkomu af fjárfestingarstarfsemi síðari hluta ársins.
Afkoma (m.kr.) |
2F 2015 |
2F 2014 |
Breyting |
|
6M 2015 |
6M 2014 |
Breyting |
Eigin iðgjöld tímabilsins |
3.310 |
3.174 |
4,3% |
|
6.610 |
6.271 |
5,4% |
Fjárfestingartekjur |
963 |
317 |
203,8% |
|
2.003 |
258 |
676,4% |
Heildartekjur |
4.273 |
3.491 |
22,4% |
|
8.613 |
6.529 |
31,9% |
|
|
|
|
|
|
|
|
Eigin tjón tímabilsins |
-2.514 |
-2.074 |
21,2% |
|
-5.134 |
-4.161 |
23,4% |
Rekstrarkostnaður |
-873 |
-915 |
-4,6% |
|
-1.769 |
-1.880 |
-5,9% |
Afskriftir óefnislegra eigna |
-116 |
-117 |
-0,9% |
|
-231 |
-234 |
-1,3% |
Heildarkostnaður |
-3.503 |
-3.106 |
12,8% |
|
-7.134 |
-6.275 |
13,7% |
|
|
|
|
|
|
|
|
Hagnaður |
756 |
329 |
129,8% |
|
1.380 |
205 |
573,2% |
Hagnaður á hlut (kr.) |
0,47 |
0,21 |
|
|
0,87 |
0,13 |
|
Hagnaður fyrir skatta og afskrift óefnislegra eigna |
887 |
503 |
76,3% |
|
1.710 |
487 |
251,1% |
Hagnaður af vátryggingastarfsemi |
216 |
474 |
-54,4% |
|
271 |
792 |
-65,8% |
|
|
|
|
|
|
|
|
Efnahagur |
|
|
|
|
|
|
|
Eigið fé |
15.193 |
17.810* |
|
|
15.193 |
17.810* |
|
Fjárfestingareignir án söfnunarlíftrygginga |
29.282 |
30.827* |
|
|
29.282 |
30.827* |
|
Eigin vátryggingaskuld |
22.915 |
20.914* |
|
|
22.915 |
20.914* |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Lykiltölur úr rekstri - hlutföll |
2F 2015 |
2F 2014 |
|
|
6M 2015 |
6M 2014 |
|
Samsett hlutfall samstæðu |
100,8% |
91,5% |
|
|
102,5% |
94,0% |
|
Eiginfjárhlutfall samstæðu |
34,3% |
40,2%* |
|
|
34,3% |
40,2%* |
|
Ávöxtun eigin fjár á ársgrundvelli |
18,3% |
7,9% |
|
|
16,7% |
2,4% |
|
Ávöxtun eigin fjár leiðrétt f.
óefnisl. eignum og afskriftum |
30,0% |
12,9% |
|
|
24,1% |
5,8% |
|
*31.12.2014
Kynningarfundur
Sjóvá býður til opins kynningarfundar um afkomu félagsins á öðrum ársfjórðungi 2015 fimmtudaginn 27. ágúst kl. 16:00 í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð. Hermann Björnsson forstjóri mun kynna uppgjörið og svara spurningum. Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá fundinum á vefslóðinni www.sjova.is/afkomukynningar
Nánari upplýsingar
Allar nánari upplýsingar veitir Þórður Pálsson í síma 440-2000 eða fjarfestar@sjova.is.
Samstæðureikningur Sjóvár fyrir annan ársfjórðung var samþykktur af stjórn og forstjóra á stjórnarfundi þann 27. ágúst 2015. Árshlutareikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður af endurskoðendum félagsins.
|