English Icelandic
Birt: 2015-08-20 18:25:39 CEST
Landsbankinn hf.
Reikningsskil

Landsbankinn hf.: Afkoma á fyrri helming ársins 2015

Landsbankinn hagnast um 12,4 milljarða króna á fyrri helmingi ársins 2015

Afkoma Landsbankans var jákvæð um 12,4 milljarða króna eftir skatta á fyrri helmingi árins 2015 samanborið við 14,9 milljarða króna hagnað á sama tímabili árið 2014. Hreinar vaxtatekjur voru 16,2 milljarðar króna og hækka um 6% á milli tímabila. Hreinar þjónustutekjur námu 3,4 milljörðum króna og hækka um 16% frá sama tímabili árið áður. Virðisbreytingar útlána lækka um 9,6 milljarða króna á milli ára, en hagnaður af hlutabréfum hækkar á sama tíma um tæpa 5 milljarða. Arðsemi eigin fjár á tímabilinu var 10,4% á ársgrundvelli samanborið við 12,8% á sama tímabili árið áður.

Kostnaðarhlutfall lækkar umtalsvert, er 44,8% á fyrri helmingi ársins en var 54,9% á sama tímabili árið áður. Rekstrarkostnaður hækkar um 2% milli ára, en betri tekjusamsetning skýrir lækkun kostnaðarhlutfallsins. Innlán frá viðskiptavinum hafa aukist um 13% á árinu og útlán um 6% en hluta þess má rekja til samruna við Sparisjóð Vestmannaeyja í lok mars, en rekstraráhrifa hans gætir nú í uppgjöri bankans í fyrsta sinn. Á fyrri helmingi ársins námu ný íbúðalán 31,7 milljarði króna, en voru 21,5 milljarður króna á sama tíma á síðasta ári. Landsbankinn var með mesta markaðshlutdeild í bæði hlutabréfa- og skuldabréfaviðskiptum í Kauphöll á fyrri hluta árs.

Steinþór Pálsson, bankastjóri segir: „Afkoma Landsbankans fyrstu sex mánuði ársins er með ágætum, tekjusamsetningin betri en áður og fjárhagsstaðan er traust. Bankinn hefur notið góðs af hagstæðri þróun í efnahagslífinu og á fjármálamörkuðum og viðskipti hafa verið að aukast umtalsvert.  Markaðshlutdeild bankans í útlána- og innlánastarfsemi og í markaðsviðskiptum heldur áfram að aukast.  Samkvæmt mælingum Gallup í júní mælist Landsbankinn með mestu markaðshlutdeildina á einstaklingsmarkaði, eða 35,1% og hefur aldrei mælst hærri.  Þetta sýnir að viðskiptavinir kunna að meta það sem Landsbankinn er að gera.

Í lok mars sameinaðist Sparisjóður Vestmannaeyja við Landsbankann.  Samþætting starfseminnar hefur gengið vel og leggur bankinn áherslu á að veita öfluga fjármálaþjónustu á starfssvæðum sparisjóðsins til hagsbóta fyrir íbúa og atvinnulíf.

Í júlí hækkaði alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor‘s (S&P) lánshæfiseinkunn bankans í BBB- með jákvæðum horfum.  Landsbankinn er nú kominn í fjárfestingarflokk og það eykur traust til bankans á mörkuðum og styður við fjármögnun hans í nánustu framtíð, bæði á innlendum og erlendum mörkuðum.

Áætlanir stjórnvalda um losun fjármagnshafta  munu að öllum líkindum hafa töluverð áhrif á ýmsar stærðir í efnahagsreikningi bankans.  Landsbankinn er vel undir það búinn að mæta útflæði innlána í eigu slitabúanna sem óhjákvæmilega mun leiða af losun fjármagnshaftana.

Það sem af er árinu hefur Landsbankinn unnið að innleiðingu nýrrar stefnu sem nær til ársins 2020 og felur hún í sér umfangsmiklar breytingar sem ætlað er að skila árangri bæði til skemmri og lengri tíma.  Stefnan felur í sér enn frekari hagræðingu í rekstri, m.a. með því að koma miðlægri starfsemi bankans undir eitt þak en Landsbankinn hefur tekið sér frest til að vega og meta þau sjónarmið sem fram hafa komið  um fyrirhugaða nýbyggingu. Í stefnunni er lögð áhersla á að veita viðskiptavinum fyrirmyndarþjónustu, þróa rafræna þjónustu, auka skilvirkni stoðeininga, móta nútímalegra tækniumhverfi og hagkvæman efnahagsreikning um leið og áhættu er haldið innan marka. Þá er sérstök áhersla lögð á árangursmiðaða menningu innan bankans. Saman eiga þessir þættir sem brotnir hafa verið niður í 7 verkstrauma, að skila ánægðum og tryggum viðskiptavinum og starfsmönnum, hagkvæmum rekstri og ásættanlegri arðsemi eigin fjár til framtíðar.“

Helstu stærðir úr rekstri og efnahag á öðrum fjórðungi 2015

  • Hagnaður nam 6 milljörðum króna á 2F 2015 samanborið við 10,6 milljarða króna á sama ársfjórðungi 2014. 
  • Arðsemi eigin fjár eftir skatta lækkar á milli tímabila og var 10,1% á 2F 2015 samanborið við 18,4% á sama ársfjórðungi 2014
  • Virðisbreytingar útlána lækka talsvert á milli tímabila og voru 0,2 milljarðar í samanburði við 7,3 milljarða á 2F 2014.
  • Hreinar vaxtatekjur hækkuðu milli tímabila og voru 8,9 milljarðar á 2F 2015 en voru 7,4 milljarðar á 2F 2014. 
  • Hreinar þjónustutekjur hækkuðu á milli tímabila og voru 1,8 milljarðar á 2F 2015 samanborið við  1,4 milljarða á sama tímabili árið áður. 

Helstu stærðir úr rekstri og efnahag á fyrri helmingi ársins 2015

Rekstur:

  • Hagnaður Landsbankans nam 12,4 milljörðum króna eftir skatta á fyrstu sex mánuðum ársins 2015, samanborið við 14,9 milljarða króna á sama tíma á árinu 2014.
  • Arðsemi eigin fjár eftir skatta nam 10,4% samanborið við 12,8% fyrir sama tímabil árið 2014.
  • Hreinar vaxtatekjur námu 16,2 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins í samanburði við 15,2 milljarða króna á sama tímabili árið 2014.
  • Hreinar vaxtatekjur í hlutfalli af meðalstöðu heildareigna voru 2,8% á fyrstu sex mánuðum ársins en 2,6% á sama tímabili árið 2014.
  • Hreinar þjónustutekjur námu 3,4 milljörðum króna og hafa aukist um 16% frá sama tímabili árið áður, einkum vegna breytinga á kortamarkaði og aukinna umsvifa í markaðsviðskiptum.
  • Aðrar rekstrartekjur hækka um 4 milljarða króna sem skýrist að mestu af auknum hagnaði af hlutabréfum.
  • Virðisbreytingar útlána á fyrstu sex mánuðum ársins voru jákvæðar um 1,8 milljarða króna, en lækka engu að síður verulega milli ára, en á sama tímabili árið 2014 voru virðisbreytingar jákvæðar um 11,4 milljarða króna.
  • Laun og launatengd gjöld hækka um 2% á milli tímabila en sú hækkun skýrist að mestu leyti af gjaldfærslum vegna starfslokasamninga. Rekstrarkostnaður að frátöldum launum og launatengdum gjöldum hækkar um 3% en sú hækkun skýrist  af auknu framlagi í Tryggingasjóð innistæðueigenda og áhrifum samruna.
  • Kostnaðarhlutfall fyrstu sex mánuði ársins var 44,8% samanborið við 54,9% á sama tíma árið áður. 
  • Stöðugildi 30. júní voru 1.088 en voru 1.162 á sama tíma fyrir ári. Frá árslokum 2011 hefur stöðugildum í Landsbankanum fækkað um 18,4% eða sem nemur 245 stöðugildum að teknu tilliti til samruna við önnur fjármálafyrirtæki á tímabilinu.

Efnahagur:

  • Eigið fé bankans nam í lok júní um 239,9 milljörðum króna og hefur það lækkað um 4% frá áramótum. Á fyrsta ársfjórðungi var greiddur tæplega 24 milljarða króna arður til hluthafa.
  • Eiginfjárhlutfall bankans (CAR – Capital Adequacy Ratio) er nú 28,0% en var 26,8% í lok júní 2014.
  • Heildareignir bankans námu 1.173 milljörðum í lok júní 2015.
  • Innlán viðskiptavina hafa aukist umtalsvert og eru 621 milljarðar króna í lok júní 2015.
  • Ný útlán til viðskiptavina á fyrir helming ársins voru  95 milljarðar króna, en að teknu tilliti til afborgana, virðisbreytinga og fleiri þátta hækka heildarútlán um 43 milljarða á tímabilinu. Þar af um 7 milljarða vegna samruna við Sparisjóð Vestmannaeyja á fyrsta ársfjórðungi.
  • Lausafjárstaða bankans er mjög sterk, bæði í erlendri mynt og í íslenskum krónum og vel yfir kröfum eftirlitsaðila.
  • Gjaldeyrisjöfnuður bankans er í góðu horfi og eignir í erlendri mynt eru um 19 milljarðar króna umfram skuldir í erlendri mynt.
  • Heildarvanskil hjá fyrirtækjum og heimilum stóðu í 2,3% í lok júní 2015, og hafa staðið í stað á árinu.

Aðrir þættir í rekstri fyrstu sex mánuði ársins 2015

  • Landsbankinn hf. og Sparisjóður Norðurlands ses. skrifuðu undir samrunaáætlun 30. júní. Samruninn er ekki genginn í gegn þar sem hann er háður ákveðnum fyrirvörum sem á eftir að uppfylla.
  • Samkvæmt mælingum Gallup í júní var Landsbankinn með mesta markaðshlutdeild á einstaklingsmarkaði á fyrri hluta ársins, eða 35,1% og hefur hún aldrei mælst hærri.  Mikill vöxtur er einnig í íbúðalánum bankans, en á fyrri helmingi ársins námu ný íbúðalán 31,7 milljörðum króna, en voru 21,5 milljarður króna á sama tíma á síðasta ári.
  • Í lok júní var Landsbankinn með mestu markaðshlutdeild í Kauphöll fyrir bæði hluta- og skuldabréf. Markaðshlutdeild bankans í hlutabréfaveltu var 30,3% og var markaðshlutdeild skuldabréfaveltu bankans 21,5%.
  • Í maí seldi Ístak hf. dótturfélag Landsbankans, fyrirtækið Ístak Ísland ehf., danska verktakafyrirtækinu Per Aarsleff AS.
  • Í könnun Gallup í mars 2015, sem unnin var fyrir Landsbankann, kom fram að flestir aðspurðra, eða sem nemur 40%, myndu velja sér Landsbankann þegar kemur að eignastýringarþjónustu. 
  • Á aðalfundi bankans 18. mars var samþykkt að greiða eigendum bankans um 24 milljarða króna í arð. Landsbankinn hefur greitt rúmlega 53 milljarða króna í arð vegna síðustu þriggja rekstrarára.
  • Í mars varð Landsbankinn fyrstur banka á Íslandi til að hljóta gullmerki Jafnlaunaúttektar PWC. Landsbankinn er jafnframt stærsta fyrirtækið sem hefur undirgengist og staðist þá úttekt.
  • Annað árið í röð taldi alþjóðlega fjármálaritið Global Finance Landsbankann besta bankann á Íslandi.
  • Annað árið í röð valdi alþjóðlega fjármálatímaritið International Finance, Landsbankann besta bankann á Íslandi og taldi netbanka Landsbankans besta netbankann.
  • Nýr netbanki einstaklinga var tekinn í notkun í janúar. Í febrúar var hann valinn besta þjónustusvæðið af dómnefnd Íslensku vefverðlaunanna.

 

Nánari upplýsingar veita:

Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi, pr@landsbankinn.is og í síma 410 4011

Hanna Kristín Thoroddsen, ir@landsbankinn.is og í síma 410 7328


Landsbankinn 1H 2015 Afkomukynning.pdf
Landsbankinn 1H 2015 Afkomutilkynning.pdf
Landsbankinn Consolidated Interim Financial Statement 30.06.2015.pdf