Icelandic
Birt: 2015-08-17 18:11:56 CEST
Reitir fasteignafélag hf.
Fjárhagsdagatal

REITIR: Birting uppgjörs 2. ársfjórðungs 2015 þann 20. ágúst 2015

Reitir fasteignafélag hf. birtir uppgjör fyrri árshelmings 2015 eftir lokun markaða fimmtudaginn 20. ágúst nk.

Reitir bjóða fjárfestum og markaðsaðilum á opinn fund þar sem Guðjón Auðunsson, forstjóri, og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, munu kynna uppgjörið.

Fundurinn verður haldinn föstudaginn 21. ágúst kl. 8.30 í fundarsal á jarðhæð Centerhotel Plaza við Ingólfstorg, 101 Reykjavík.

Kynningarefni fundarins verður birt samhliða uppgjörinu og verður aðgengilegt á fjárfestasíðu Reita, www.reitir.is/fjarfestar.