Icelandic
Birt: 2015-08-17 14:04:42 CEST
TM hf.
Fjárhagsdagatal

Uppgjör annars ársfjórðungs 2015 birt mánudaginn 24. ágúst – kynningarfundur þriðjudaginn 25. ágúst kl. 8:30

TM mun birta árshlutauppgjör fyrir annan ársfjórðung 2015 eftir lokun markaða mánudaginn 24. ágúst næst komandi.

TM býður markaðsaðilum á kynningarfund um afkomu félagsins á öðrum ársfjórðungi kl. 8:30 þriðjudaginn 25. ágúst. Þar mun Sigurður Viðarsson forstjóri kynna uppgjörið og svara spurningum. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum TM að Síðumúla 24. 4. hæð.

Árshlutareikning og afkomutilkynningu verður hægt að nálgast á vef félagsins www.tm.is. Kynning á uppgjörinu verður einnig aðgengileg á sama stað við upphaf kynningarfundar.

Hægt er að fylgjast með fundinum í gegnum vefinn á slóðinni: https://global.gotomeeting.com/join/532375365