English Icelandic
Birt: 2015-07-24 14:57:29 CEST
Icelandair Group hf.
Fjárhagsdagatal

Breytt tímasetning á birtingu uppgjörs 2. ársfjórðungs 2015

Icelandair Group mun birta uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung ársins 2015 fyrr en áður hefur verið tilkynnt um, eða á mánudaginn 27. júlí 2015. Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn þriðjudaginn 28. júlí 2015 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Kynningin hefst kl. 16:30 og verður í Þingsal 3.

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, og Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála, munu kynna afkomuna og svara spurningum ásamt öðrum stjórnendum. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Icelandair Group: www.icelandairgroup.is og í fréttakerfi Nasdaq OMX Iceland hf.

Hægt verður að fylgjast með fundinum beint á vefslóðinni:
http://www.icelandairgroup.is/investors/reports-and-presentations/webcast-2015/