English Icelandic
Birt: 2015-07-21 12:22:07 CEST
Íslandsbanki hf.
Fyrirtækjafréttir

Islandsbanki hf. : Íslandsbanki í fjárfestingarflokk samkvæmt mati S&P

Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor's tilkynnti í dag um hækkun á lánshæfismati Íslandsbanka í BBB-/A-3 með stöðugum horfum.

Hækkunin endurspeglar það mat S&P að rekstrarskilyrði Íslandsbanka, sem og annarra íslenskra viðskiptabanka, fari batnandi.  

Að mati S&P endurspeglar lánshæfismat Íslandsbanka sterkt eiginfjárhlutfall og rekstrarafkomu, og sterka lausafjárstöðu.

Hækkun lánshæfismats var tekin í kjölfar skoðunar S&P á íslensku bankakerfi og byggir hún á mati þeirra um að dregið hafi úr efnahagslegri áhættu í íslenska hagkerfinu og væntingum um bætt lánshæfi og framtíðarstöðugleika. S&P gerir ráð fyrir takmörkuðum viðbótar áhrifum fjármálakreppunnar 2008 á lánshæfi bankans. S&P leit einnig til hækkunar lánshæfismats íslenska ríkisins sem merki um aukið jafnvægi og bætt skilyrði bankakerfisins.
 

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka:

"Þessi niðurstaða er í takt við væntingar okkar í ljósi hækkunar á lánshæfismati íslenska ríkisins. Það er ánægjulegt að fá viðurkenningu á þeim árangri sem hefur náðst, bæði í íslensku efnahagslífi sem og í endurskipulagningu lánasafns bankans. Lánshæfismat í fjárfestingarflokk frá Fitch og nú Standard & Poor's mun hafa jákvæð áhrif á aðgengi okkar að erlendu fjármagni og gera okkur kleift þjónusta viðskiptavini okkar enn betur og uppfylla framtíðarsýn bankans um að vera númer 1 í þjónustu."
 

Nánari upplýsingar veita:

  • Fjárfestatengsl - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4752.
  • Upplýsingafulltrúi - Dögg Hjaltalín, pr@islandsbanki.is og í síma 844 3925.

HUG#1940130


Icelands Commercial Banks Upgraded.pdf