Icelandic
Birt: 2015-07-20 18:19:27 CEST
Reitir fasteignafélag hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 29. viku 2015 keypti Reitir fasteignafélag hf. 1.000.000 eigin hluti fyrir 67,975 milljónir kr. eins og hér segir: 

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskipta-verð Kaupverð Eigin hlutir eftir viðskipti
13.7.2015 15:07 250.000 68,30 17.075.000 1.250.000
14.7.2015 11:39 250.000 67,80 16.950.000 1.500.000
14.7.2015 15:15 250.000 67,90 16.975.000 1.750.000
15.7.2015 13:19 250.000 67,90 16.975.000 2.000.000
Samtals   1.000.000   67.975.000  

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 19. júní 2015, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 18. júní 2015.

Reitir hafa nú keypt samtals 2.000.000 hluti í félaginu sem samsvarar 5,88% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 134,5 milljónum króna. Reitir eiga nú samtals 0,27% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 34.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 2.300 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016 en þó aldrei síðar en þann 29. febrúar 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.