Icelandic
Birt: 2015-07-13 16:56:15 CEST
Reitir fasteignafélag hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 28. viku 2015 keypti Reitir fasteignafélag hf. 500.000 eigin hluti fyrir 33,875 milljónir kr. eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskipta-verð Kaupverð     Eigin hlutir eftir viðskipti
9.7.2015 15:09 250.000 68 17.000.000 750.000
9.7.2015 15:15 250.000 67,5 16.875.000 1.000.000
Samtals   500.000   33.875.000  

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 19. júní 2015, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 18. júní 2015.

Reitir hafa nú keypt samtals 1.000.000 hluti í félaginu sem samsvarar 2,94% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 66,525 milljónum króna. Reitir eiga nú samtals 0,13% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 34.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 2.300 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016 en þó aldrei síðar en þann 29. febrúar 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.