English Icelandic
Birt: 2015-07-10 00:14:34 CEST
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Flugfélag Íslands hefur keypt Bombardier Q400 flugvélar

Flugfélag Íslands hefur gengið frá kaupum á þremur Bombardier Q400 flugvélum. Heildarfjárfestingin mun hækka heildareignir Icelandair Group samstæðunnar um 25 milljónir dollara, að teknu tilliti til söluverðs allra fimm Fokker 50 flugvéla Flugfélags Íslands.  Vélarnar eru 2000 og 2001 árgerð og verða þær afhentar í júlí og ágúst á þessu ári.  Þá fara þær í innleiðingarferli fyrir leiðakerfi Flugfélags Íslands en gert er ráð fyrir að fyrsta vélin byrji að fljúga í leiðarkerfinu í desember 2015.  Fjárfestingin verður fjármögnuð með lausafé Icelandair Group.​

 

Nánari upplýsingar veitir:

Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801