Icelandic
Birt: 2015-06-29 17:42:30 CEST
Reitir fasteignafélag hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.

Í 26. viku 2015 keypti Reitir fasteignafélag hf. 250.000 eigin hluti fyrir 16 milljónir kr. eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskipta-verð Kaup-
verð
Eigin hlutir
eftir viðskipti
23.6.2015 15:19 250.000 64 16.000.000 250.000
Samtals   250.000   16.000.000  

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 19. júní 2015, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 18. júní 2015.

Reitir hafa nú keypt samtals 250.000 hluti í félaginu sem samsvarar 0,74% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 16 milljónum króna. Reitir eiga nú samtals 0,03% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 34.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 2.300 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016 en þó aldrei síðar en þann 29. febrúar 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.