Icelandic
Birt: 2015-06-08 11:34:33 CEST
Landsbréf hf.
Fyrirtækjafréttir

Frestun viðskipta með hlutdeildarskírteini Landsbréfa

Landsbréf hf. tilkynna hér með að stjórn félagsins tók þá ákvörðun kl. 9.15 í morgun að fresta viðskiptum með hlutdeildarskírteini í eftirtöldum sjóðum.

Er þessi ákvörðun tekin í ljósi ákvörðunar Fjármálaeftirlitsins að stöðva viðskipti með tiltekna skráða fjármálagerninga..

Sjóðirnir sem um ræðir eru:

  • Landsbréf - Markaðsbréf 
  • Landsbréf - Eignabréf
  • Landsbréf - Einkabréf B
  • Landsbréf - Einkabréf C
  • Landsbréf - Safnbréf 1
  • Landsbréf - Sparibréf stutt
  • Landsbréf - Sparibréf meðallöng
  • Landsbréf – Sparibréf plús
  • Landsbréf - Sparibréf verðtryggð
  • Landsbréf - Sparibréf óverðtryggð
  • Landsbréf – LEQ
  • Landsbréf – Úrvalsbréf

 

Ekki er að svo komnu máli lokað fyrir viðskipti með:

  • Landsbréf – Veltubréf II
  • Landsbréf – Öndvegisbréf
  • Landsbréf – Global Equity
  • Landsbréf – Nordic 40

 

Gert er ráð fyrir að opnað verði að nýju fyrir viðskipti þá þegar opnað hefur verið fyrir viðskipti í kauphöll. Nánari upplýsingar veitir Helgi Þór Arason í síma 410 2500.