Icelandic
Birt: 2015-06-01 17:45:10 CEST
Hagar hf.
Hluthafafundir

Hagar hf. - Framboð til stjórnar á aðalfundi 4. júní 2015

Aðalfundur Haga hf. verður haldinn fimmtudaginn 4. júní 2015. Fundurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica (VOX club), Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík og hefst hann kl. 09:00.

Framboðsfrestur til stjórnar Haga hf. rann út þann 30. maí sl. Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins:

Stjórnarmenn:

  1. Erna Gísladóttir, kt. 050568-2969
  2. Kristín Friðgeirsdóttir, kt. 090871-5369
  3. Salvör Nordal, kt. 211162-5119
  4. Sigurður Arnar Sigurðsson, kt. 090164-2529
  5. Stefán Árni Auðólfsson, kt. 210772-4729

Samkvæmt samþykktum Haga hf. eiga fimm sæti í stjórn félagsins og er því sjálfkjörið. Önnur framboð bárust ekki. Er það mat stjórnar að öll framboð séu gild.

 

Erna Gísladóttir

Erna var fyrst kjörin í stjórn Haga hf. þann 1. mars 2010. Hún er menntuð MBA frá IESE Barcelona og B.Sc. í hagfræði frá Háskóla Íslands. Erna er forstjóri og eigandi BL ehf. og er ræðismaður Suður Kóreu á Íslandi. Erna var forstjóri Bifreiða & landbúnaðarvéla hf. 2003-2008 og einn af eigendum þess félags, en hún var framkvæmdastjóri hjá B&L 1991-2003. Erna situr í stjórnum eftirtalinna félaga: EGG ehf., EGG fasteignir ehf., Eldhúsvörur ehf., Hregg ehf., BL ehf., BLIH eignarhald hf., SF1 slhf., SF1 GP ehf. og Sjóvá-Almennar tryggingar hf. Erna á engin hlutabréf í Högum hf. beint. Hún er fjárhagslega tengd Sjóvá-Almennum tryggingum hf. sem eiga 6.888.889 hluti í Högum hf.

 

Kristín Friðgeirsdóttir

Kristín var fyrst kjörin í stjórn Haga hf. þann 11. maí 2011. Hún er Ph.D. í rekstrarverkfræði frá Stanford University, M.Sc. í rekstrarverkfræði frá Stanford University og B.Sc. í véla- og iðnaðarverk-fræði frá Háskóla Íslands. Kristín kennir við London Business School og stundar ráðgjöf, rannsóknir og kennslu á sviði ákvarðanatöku, áhættustýringar, verðlagningar og tekjustýringar. Hún hefur starfað sem ráðgjafi hjá McKinsey, Intel, AMD, Yahoo og öðrum internet- og fjármálafyrirtækjum og kennir stjórnendum erlendra fyrirtækja ákvarðanatöku, s.s. Mars, Sanofi, Oman Oil og Lloyds. Kristín situr í stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar hf., Distica hf. og Háskólaráðs Háskólans í Reykjavík ehf. Hvorki Kristín né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf.

 

Salvör Nordal

Salvör var fyrst kjörin í stjórn Haga hf. þann 5. júní 2014. Hún er Ph.D. í heimspeki frá Háskólanum í Calgary, M.Phil í Social Justice frá Háskólanum í Stirling og B.A. í heimspeki frá Háskóla Íslands. Salvör er forstöðumaður Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands og hefur sinnt því starfi frá árinu 2001. Salvör hefur starfað sem háskólakennari frá árinu 1998, var í vinnuhópi um siðferði og starfshætti í tengslum við Rannsóknarnefnd Alþingis um fall bankanna, formaður Stjórnlagaráðs 2011, framkvæmdastjóri Íslenska dansflokksins 1989-1994 og framkvæmdastjóri Listahátíðar 1986. Auk þess hefur Salvör setið í Fjölmiðlanefnd frá árinu 2011 og sinnt margs konar fjölmiðla- og trúnaðarstörfum. Salvör situr í stjórn sjóðs Samtaka sparifjáreigenda, fyrir hönd samtakanna. Hvorki Salvör né aðilar henni fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf.

 

Sigurður Arnar Sigurðsson

Sigurður Arnar var fyrst kjörinn í stjórn þann 5. júní 2014. Hann er menntaður Cand. Oecon frá Háskóla Íslands. Sigurður Arnar er forstjóri eigin fyrirtækis sem sinnir ráðgjafa- og fjárfestingastarfsemi. Sigurður Arnar var áður forstjóri Húsamiðjunnar 2010-2013, forstjóri Kaupáss 2004-2006, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Byko 2000-2004 og framkvæmdastjóri Elko 1997-2000. Á árunum 1993-1996 var Sigurður Arnar eigandi og framkvæmdastjóri fyrirtækis í matvælaiðnaði og 1990-1993 starfaði hann við endurskoðun hjá Arthur Andersen og KPMG ehf. Sigurður Arnar situr í stjórnum Cibus ehf., Framsýnar ehf. og Metex ehf. Hvorki Sigurður Arnar né aðilar honum fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf.

 

Stefán Árni Auðólfsson

Stefán Árni var fyrst kjörinn í stjórn Haga hf. þann 7. júní 2013. Hann er menntaður lögfræðingur (Cand. jur) frá Háskóla Íslands og er með framhaldsmenntun frá Háskólanum í Kent í Bretlandi. Stefán Árni er með réttindi sem héraðsdómslögmaður og próf í verðbréfaviðskiptum. Stefán Árni starfar sem lögmaður hjá Lögmönnum Bárugötu slf. Stefán Árni hefur áður sinnt störfum hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins 2005-2011, á Nefndasviði Alþingis 2003-2005 og hjá Fortis lögmannsstofu 1999-2005. Stefán Árni situr í stjórnum eftirtalinna félaga: Eik fasteignafélag hf., Hváll ehf., Egla hf. og Síminn hf. Hvorki Stefán Árni né aðilar honum fjárhagslega tengdir eiga hlutabréf í Högum hf.