REITIR: Ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar
Stjórn Reita hefur á grundvelli samþykktar aðalfundar félagsins tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum og er markmið áætlunarinnar að lækka útgefið hlutafé félagsins. Áætlað er að kaupa allt að 34 milljónum hluta sem jafngildir 4,51% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 2.300 millj. kr. Áætlunin verður í gildi til 29. febrúar 2016.
Endurkaupaáætlunin verður framkvæmd af Arctica Finance hf. sem tekur allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.
Nánari upplýsingar veita Guðjón Auðunsson, forstjóri, í síma 575 9000 eða 660 3320 og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 575 9000 eða 669 4416.
|