Eik fasteignafélag hf.: Niðurstöður aðalfundar Eikar fasteignafélags hf. Aðalfundur Eikar fasteignafélags hf. var haldinn fimmtudaginn 21. maí 2015 á 20. hæð í Turninum, Smáratorgi 3, Kópavogi. Tillögur stjórnar sem lágu fyrir fundinn má finna á www.eik.is/hluthafar - Ársreikningur
Aðalfundur samþykkti ársreikning félagsins vegna ársins 2014. - Ráðstöfun hagnaðar félagins á rekstrarárinu 2014
Aðalfundur samþykkti tillögur stjórnar um að greiða 580.000.000 kr. í arð. - Starfskjarastefna félagsins
Aðalfundur samþykkti starfskjarastefnu félagsins eins og hún var lögð fyrir fundinn. - Kjör stjórnar og ákvörðun um þóknun til stjórnar fyrir störf þeirra fyrir komandi starfsár
Eftirtaldir aðilar voru kosnir í stjórn félagsins: - Agla Elísabet Hendriksdóttir
- Arna Harðardóttir
- Eyjólfur Árni Rafnsson
- Frosti Bergsson
- Stefán Árni Auðólfsson
Aðalfundur samþykkti að mánaðarleg stjórnarlaun myndu verða óbreytt frá ákvörðun síðasta aðalfundar. Laun stjórnarmanna nemi þannig 225.000 kr. og stjórnarformaður fái greidd tvöföld laun - Kosning löggilts endurskoðanda eða endurskoðunarfélags
Aðalfundur samþykkti að KPMG ehf. yrði endurkjörið endurskoðunarfyrirtæki félagsins. - Önnur mál sem löglega eru fram borin
Engin önnur mál voru tekin til afgreiðslu á fundinum. HUG#1923038
|