English Icelandic
Birt: 2015-05-11 18:00:04 CEST
Landsbankinn hf.
Reikningsskil

Landsbankinn hf.: Afkoma fyrstu þrjá mánuði ársins 2015

Landsbankinn hagnast um 6,4 milljarða króna á fyrstu þremur mánuðum ársins

Afkoma Landsbankans var jákvæð um 6,4 milljarða króna eftir skatta fyrstu þrjá mánuði ársins 2015 en hagnaður á sama tímabili árið 2014 nam 4,3 milljörðum króna. Rekstrartekjur bankans hafa aukist sem skýrist að miklum hluta af auknum hagnaði af hlutabréfum á tímabilinu. Kostnaðarhlutfall lækkar umtalsvert, er 48% á fyrstu þremur mánuðum ársins en var 72% á sama tímabili árið áður. Á grundvelli heimildar í lögum um fjármálafyrirtæki tók stjórn Fjármálaeftirlitsins ákvörðun þann 29. mars s.l. sem fól í sér samruna Landsbankans við Sparisjóð Vestmannaeyja ses. en án skuldaskila og því birtast áhrif sameiningarinnar á rekstur ekki fyrr en í 6 mánaða uppgjöri bankans.

Steinþór Pálsson, bankastjóri segir: „Rekstur bankans hefur gengið vel það sem af er ári. Staða hans er áfram sterk og þrátt fyrir 24 milljarða arðgreiðslu er eigið fé bankans mjög hátt. Bæði útlán og innlán hafa aukist umtalsvert og sífellt fleiri eiga í viðskiptum við Landsbankann. Með sameiningu við Sparisjóð Vestmannaeyja fjölgar enn í hópi viðskiptavina en Landsbankinn er vel undir það búinn að taka á móti þeim. Þá fjölgar í hluthafahópi bankans sem er ánægjulegt. Viðamikilli stefnumótun til næstu fimm ára lauk á fyrsta ársfjórðungi en markmið stefnunnar er að tryggja arðsaman og hagkvæman rekstur til lengri tíma. Sýn bankans er áfram að vera til fyrirmyndar og að vera traustur samherji sinna viðskiptavina í fjármálum, að þeir hafi ávinning af viðskiptunum við bankann og það sé gagnkvæmt. Bankinn ætlar að vera hreyfiafl og starfa í sátt við umhverfið og samfélagið þannig að viðskiptavinir geti sagt: „svona á banki að vera“. “

Helstu stærðir úr rekstri og efnahag fyrsta ársfjórðungs 2015:

Rekstur:

  • Hagnaður Landsbankans nam 6,4 milljörðum króna eftir skatta á fyrstu þremur mánuðum ársins 2015, samanborið við tæpa 4,3 milljarða króna á sama tíma á árinu 2014.
  • Arðsemi eigin fjár eftir skatta nam 10,6% samanborið við 7,3% fyrir sama tímabil árið 2014.
  • Hreinar vaxtatekjur námu 7,3 milljörðum króna á fyrstu þremur mánuðum ársins í samanburði við 7,9 milljarða króna á sama tímabili árið 2014.
  • Vaxtamunur í hlutfalli af meðalstöðu heildareigna lækkar, var 2,6% á fyrstu þremur mánuðum ársins en 2,7% á sama tímabili árið 2014.
  • Hreinar þjónustutekjur námu 1,6 milljörðum króna og hafa aukist um 8% frá sama tímabili árið áður.
  • Aðrar rekstrartekjur hækka um 5 milljarða króna sem skýrist að mestu af auknum hagnaði af hlutabréfum.
  • Virðisbreytingar útlána á fyrstu þremur mánuðum ársins voru jákvæðar um 1,6 milljarða króna.
  • Að teknu tilliti til verðbólgu hefur raunhækkun rekstrarkostnaðar verið 1,3% milli ára.
  • Laun og launatengd gjöld hækka um 7% á milli tímabila en sú hækkun skýrist að mestu leyti af gjaldfærslum vegna starfslokasamninga. Rekstrarkostnaður að frátöldum launum og launatengdum gjöldum lækkar um 2,6%.
  • Kostnaðarhlutfall fyrstu þrjá mánuði ársins var 48% samanborið við 72% á sama tíma árið áður. Þessi lækkun skýrist að miklum hluta af auknum hagnaði af hlutabréfum á tímabilinu.
  • Stöðugildi 31. mars voru 1.102 en voru 1.178 á sama tíma fyrir ári.

 

Efnahagur:

  • Eigið fé bankans nam í lok mars um 233,9 milljörðum króna og hefur það lækkað um 7% frá áramótum. Lækkunin skýrist af 24 milljarða króna arðgreiðslu til hluthafa.
  • Eiginfjárhlutfall bankans (CAR – Capital Adequacy Ratio) er nú 26,7% en var 24,8% í lok mars 2014. Það er vel umfram kröfur FME.
  • Heildareignir bankans námu 1.172 milljörðum í lok mars 2015.
  • Innlán viðskiptavina hafa aukist umtalsvert og eru 624 milljarðar króna í lok mars 2015.
  • Ný útlán til viðskiptavina á fyrsta ársfjórðungi eru um 37 milljarðar króna, en að teknu tilliti til afborgana, virðisbreytinga og fleiri þátta hækka heildarútlán um 17 milljarða á tímabilinu. Þar af um 7 milljarða vegna samruna við Sparisjóð Vestmannaeyja.
  • Lausafjárstaða bankans er mjög sterk, bæði í erlendri mynt og í íslenskum krónum og vel yfir kröfum eftirlitsaðila. Heildarlausafjárstaða bankans, sem og lausafjárstaða bankans í erlendri mynt er jafnframt vel umfram lausafjárviðmið Seðlabankans.
  • Gjaldeyrisjöfnuður bankans er í góðu horfi og eignir í erlendri mynt eru um 20 milljarðar króna umfram erlendar skuldir.
  • Heildarvanskil hjá fyrirtækjum og heimilum stóðu í 2,3% í lok mars 2015, og standa í stað á árinu.

 

Helstu þættir í rekstri fyrstu þrjá mánuði ársins 2015

  • Á grundvelli samkomulags milli Landsbankans og stjórnar Sparisjóðs Vestmannaeyja tók Fjármálaeftirlitið (FME) ákvörðun um samruna Landsbankans og Sparisjóðs Vestmannaeyja og tók samruninn gildi sunnudaginn 29. mars. Frá og með þeim tíma urðu allir starfsmenn sparisjóðsins starfsmenn Landsbankans og bankinn yfirtók allar eignir og skuldbindingar sjóðsins.
  • Landsbankinn er áfram með mesta markaðshlutdeild í nýjum íbúðalánum. Á fyrsta fjórðungi jukust þau verulega og námu ný lán 12,8 milljörðum króna, en voru 8,5 milljarðar á sama tíma á síðasta ári.
  • Á fyrsta ársfjórðungi var Landsbankinn með mesta markaðshlutdeild á skuldabréfamarkaði í Kauphöll eða 24,2% og einnig stærstur á hlutabréfamarkaði með 28,2%.
  • Á aðalfundi bankans 18. mars var samþykkt að greiða eigendum bankans um 24 milljarða króna í arð.
  • Í mars var Landsbankinn fyrstur banka á Íslandi til að hljóta gullmerki Jafnlaunaúttektar PWC. Landsbankinn er jafnframt stærsta fyrirtækið sem hefur undirgengist og staðist þá úttekt.
  • Annað árið í röð telur alþjóðlega fjármálaritið Global Finance Landsbankann besta bankann á Íslandi.
  • Annað árið í röð valdi alþjóðlega fjármálatímaritið International Finance, Landsbankann besta bankann á Íslandi og taldi netbanka Landsbankans besta netbankann.
  • Nýr netbanki einstaklinga var tekinn í notkun í janúar. Í febrúar var hann valinn besta þjónustusvæðið af dómnefnd Íslensku vefverðlaunanna.
  • Í fyrsta sinn var ársskýrsla Landsbankans eingöngu gefin út á rafrænu formi á nýjum ársskýrsluvef bankans.

 

Nánari upplýsingar veitir:

Kolbrún Guðlaugsdóttir, fjárfestatengill, ir@landsbankinn.is og í síma 410 4014


Landsbankinn Afkomukynning 1F 2015.pdf
Landsbankinn Afkomutilkynning 1F 2015.pdf
Landsbankinn Consolidated Interim Financial Statements 31.03.2015.pdf