Icelandic
Birt: 2015-05-08 21:46:42 CEST
Hagar hf.
Fjárhagsdagatal

Hagar hf. - birting ársuppgjörs 2014/15

Hagar hf. birta ársuppgjör sitt fyrir rekstrarárið 1. mars 2014 – 28. febrúar 2015, þriðjudaginn 12. maí nk.

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík, miðvikudaginn 13. maí kl. 8:30 en þar mun Finnur Árnason forstjóri Haga kynna afkomu félagsins og svara spurningum ásamt stjórnendum félagsins.

Kynningarefni, ásamt upptöku af fundinum, verður aðgengilegt að honum loknum á heimasíðu Haga, www.hagar.is.