Icelandic
Birt: 2015-05-07 18:25:42 CEST
TM hf.
Fyrirtækjafréttir

Tryggingamiðstöðin hf. (TM) hefur lokið sölu á víkjandi skuldabréfum að fjárhæð 2.000 m.kr.

Á síðustu vikum hefur TM unnið að sölu skuldabréfaflokksins TM 15 1 og hefur nú gengið frá sölu flokksins til breiðs hóps fjárfesta. Skuldabréfin bera 5,25% fasta verðtryggða vexti og eru til 30 ára með uppgreiðsluheimild og þrepahækkun í vöxtum upp í 6,25% eftir 10 ár. Útgáfan er liður í nýjum áherslum í fjárhagsskipan félagsins líkt og fram kom í tilkynningum til Kauphallar þann 9. og 13. apríl 2015. Arctica Finance hf. var umsjónaraðili útgáfunnar.  

         Nánari upplýsingar veitir:
         Sigurður Viðarsson, forstjóri TM
         sigurdur@tm.is