English Icelandic
Birt: 2015-04-30 15:31:46 CEST
ÍL-sjóður
Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Forstjóri Íbúðalánasjóðs segir starfi sínu lausu

Sigurður Erlingsson, forstjóri Íbúðalánasjóðs, hefur óskað eftir því við stjórn sjóðsins að láta af störfum og hefur stjórnin fallist á beiðni hans. Stjórn Íbúðalánasjóðs mun á næstunni auglýsa starf forstjóra laust til umsóknar og mun hann fá það hlutverk að leiða breytingar sem kunna að verða á starfsemi sjóðsins við breytta skipan húsnæðismála. Þar til gengið hefur verið frá ráðningu nýs forstjóra mun staðgengill forstjóra, Gunnhildur Gunnarsdóttir, gegna störfum forstjóra og mun fráfarandi forstjóri verða henni til ráðgjafar.

 

Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir, stjórnarformaður Íbúðalánasjóðs

„Sigurður hefur gegnt starfi forstjóra Íbúðalánasjóðs frá því í nóvember 2010. Stjórn Íbúðalánasjóðs þakkar Sigurði fyrir mikilvægt framlag til sjóðsins á umliðnum árum en hann hefur leitt sjóðinn í gegnum erfiðleikatímabil í kjölfar efnahagshrunsins. Afkoma sjóðsins var jákvæð árið 2014 í fyrsta sinn frá árinu 2007, útlánasafn hefur batnað og árangur náðst  í sölu fullnustueigna.“

 

Sigurður Erlingsson, forstjóri Íbúðalánasjóðs

„Ég tók við rekstri sjóðsins árið 2010 þegar sjóðurinn stóð frammi fyrir miklum áskorunum í kjölfar efnahagshrunsins. Með sterkari innviðum sjóðsins og öflugu stjórnendateymi hefur  sjóðurinn náð góðum tökum á þessum viðfangsefnum. Ég er stoltur af því að meginmarkmið í stefnu- og starfsáætlun Íbúðalánasjóðs hafi náðst.“

 

Nánari upplýsingar veitir stjórnarformaður Íbúðalánasjóðs Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir, netfang iov@landlogmenn.is.