English Icelandic
Birt: 2015-04-29 18:40:54 CEST
Icelandair Group hf.
Reikningsskil

Afkoma á fyrsta ársfjórðungi umfram væntingar

  • EBITDA var neikvæð um 2,3 milljónir USD en var neikvæð um 13,3 milljónir USD á fyrsta ársfjórðungi 2014.
  • Mikil farþegaaukning, góð nýting og lægra eldsneytisverð skýrir að mestu afkomubatann milli ára.
  • Flutningatekjur jukust um 6%, en heildartekjur drógust saman um 3%
  • Eiginfjárhlutfall var 34% í lok mars.
  • Handbært fé frá rekstri 117,7 milljónir USD samanborið við 121,4 milljónir USD árið áður.

 

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri

„Afkoma á fyrsta ársfjórðungi var umfram áætlanir okkar og töluvert umfram afkomu fyrsta ársfjórðungs 2014. Helstu skýringar eru mikil aukning farþega í millilandaflugi og góð nýting bæði í fluginu og á hótelum félagsins, auk þess sem lægra eldsneytisverð hefur talsverð áhrif á samanburð við fyrra ár. Framboðsaukning á tímabilinu var 12% en á sama tíma jókst fjöldi farþega um 19%. Sætanýting var 79,2% og hefur aldrei verið hærri á fyrsta ársfjórðungi. Herbergjanýting á hótelum félagsins var einnig mjög góð eða 75,2% samanborið við 67,3% á fyrsta ársfjórðungi síðasta árs. Icelandair Group hefur verið í fararbroddi að byggja upp ferðaþjónustu á Íslandi utan háannar og sýna þessar nýtingatölur frá hótelunum árangurinn af starfi okkar. Rekstur annarrar starfsemi samstæðunnar gekk einnig vel á fjórðungnum.

Rekstur félagsins er mjög háður ytri aðstæðum, svo sem sveiflum á gengi gjaldmiðla og eldsneytisverði. Styrking Bandaríkjadals gagnvart Evrópumyntum hefur í för með sér neikvæð áhrif á afkomu félagsins, sérstaklega á háannatíma.  Í upphafi árs gáfum við út EBITDA spá sem nam USD 160-165 milljónum.  Sú spá byggði á að gengiskrossinn milli EUR/USD yrði að meðaltali 1,15 á árinu, en uppfærðar forsendur gera ráð fyrir að krossinn verði að meðaltali 1,07 á síðustu níu mánuðum ársins. Þá gerum við ráð fyrir að eldsneytisverð án tillits til varna lækki frá upphaflegri spá og verði 600 USD/tonn á síðustu þremur fjórðungum ársins. Að teknu tilliti til þessa er EBITDA spá fyrir árið í heild óbreytt, þrátt fyrir að afkoman hafi verið umfram væntingar á fyrsta fjórðungi.“  

 

 

Frekari upplýsingar veita:

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri
bubbi@icelandairgroup.is
896 1455

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála
bogi@icelandairgroup.is
665 8801


Frettatilkynning Q12015.pdf
Icelandair Group hf 31 3 2015.pdf