English Icelandic
Birt: 2015-04-21 16:28:39 CEST
Icelandair Group hf.
Fjárhagsdagatal

Birting uppgjörs 1. ársfjórðungs 2015

Icelandair Group birtir uppgjör sitt fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2015, miðvikudaginn 29. apríl 2015. Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn fimmtudaginn 30. apríl 2015 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, og Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála, munu kynna afkomuna og svara spurningum ásamt öðrum stjórnendum. Kynningin hefst kl. 16:30 og verður í Þingsal 3.  Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Icelandair Group: www.icelandairgroup.is og í fréttakerfi Nasdaq OMX Iceland hf.

Hægt verður að fylgjast með fundinum beint á vefslóðinni: http://www.icelandairgroup.is/investors/reports-and-presentations/