Hlutabréf Eikar fasteignafélags hf. tekin til viðskipta á Nasdaq Iceland
Nasdaq Iceland (Kauphöllin)* hefur samþykkt umsókn Eikar fasteignafélags hf. (kt. 590902-3730) (Eik) um töku hlutabréfa Eikar til viðskipta á Aðalmarkaði Kauphallarinnar. Þann 8. apríl sl. samþykkti Kauphöllin umsókn Eikar að uppfylltum skilyrðum um dreifingu hlutafjár. Þeim skilyrðum hefur nú verið fullnægt. Fyrsti viðskiptadagur með hluti Eikar verður 29. apríl nk.
Nafn félags Eik fasteignafélag hf.
Auðkenni EIK
Fyrsti viðskiptadagur 29. apríl 2015
Fjöldi hluta 3.465.180.435
ISIN kóði IS0000020709
Orderbook ID 108317
Viðskiptalota 1 hlutur
Stærðarflokkun Mid Cap
Kvikur sveifluvörður 5%
Markaður OMX ICE Equities / 23
Verðskrefatafla XICE Equities, ISK
MIC XICE
ICB atvinnugreinaflokkun
Atvinnugrein 8000 Fjármálaþjónusta
Yfirgeiri 8600 Fasteignir
* Nasdaq Iceland er vörumerkið fyrir NASDAQ OMX Iceland hf.
|