English Icelandic
Birt: 2015-04-20 10:14:22 CEST
Marel hf.
Fyrirtækjafréttir

Marel – Uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung 2015 umfram væntingar

Í tilkynningu Marel sem birt var vegna ársuppgjörs félagsins þann 5. febrúar 2015, var greint frá því að á árinu 2015 gerðu stjórnendur félagsins ráð fyrir áframhaldandi innri vexti og góðri aukningu í rekstrarhagnaði og afkomu eftir skatt. Þá hefur félagið áður birt markmið sitt að rekstrarhagnaður ársins 2017 verði yfir 100 milljónum evra.

Með hliðsjón af drögum að uppgjöri Marel fyrir fyrsta ársfjórðung 2015 er það mat stjórnenda félagsins að afkoma þess sé umfram væntingar. Byggist þetta einkum á auknum tekjum, hagstæðri tekjudreifingu   og aukinni skilvirkni í rekstri félagsins.

Mótteknar pantanir í fjórðungnum eru áætlaðar 212 milljónir evra. Tekjur fjórðungsins verða um 209 milljónir evra, með leiðréttan rekstrarhagnað* (adjusted EBIT) yfir 11% af tekjum og rekstrarhagnað (EBIT) tæplega 8% af tekjum. Hagnaður eftir skatt í fyrsta ársfjórðungi er áætlaður rúmlega 12 milljónir evra.

Sterk EBITDA og sjóðstreymi munu hafa þau áhrif að skuldsetningarhlutfall (Total Net Leverage) félagsins lækkar í 1,5 í lok fyrsta ársfjórðungs, samanborið við 2,1 í lok fjórða ársfjórðungs 2014.**

Góður meðbyr er á helstu mörkuðum Marel og skilyrði á fjármálamörkuðum eru hagstæð.  Athygli er þó vakin á því að uppgjör félagsins geta breyst milli fjórðunga vegna almennrar þróunar í efnahagsmálum og sveiflum í tekjum og tekjusamsetningu.

Uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2015 verður birt eftir lokun markaða þann 29. apríl 2015. Fundur með fjárfestum verður haldinn að morgni 30. apríl þar sem gerð verður grein fyrir uppgjörinu og framtíðarhorfum.

*Leiðrétt fyrir einskiptiskostnaði í tengslum við hagræðingaraðgerðir.

** Skuldsetningarhlutfallið er byggt á leiðréttu EBITDA (adjusted EBITDA) síðustu 12 mánuði á móti nettó vaxtaberandi skuldum í lok fjórðungsins.